persónulegt
þetta er hálfgerð dagbók, en kannski eins persónulegt eins og ég hef áhuga á í hvert skipti
Ég er ekki viss hvar ég var staddur. Beta spurði mig: "hvað er uppáhaldslagið þitt addi?".
Ég hugsaði mig um í nokkuð langan tíma og svaraði loksins : "Það er "Weather Experience" með The Prodigy."
Hún svarar: "hey má ég heyra?"
Ég rölti að einhverju plötusafni sem ég hef aldrei séð áður og byrja að róta, en eftir smá stund finn ég disk merktan "Experience" og skelli honum undir á og set á lag númer níu minnir mig.
Það byrjar að hljóma og ég er alveg að komast í stemningu og beta virðist vera að fýla þetta, síðan kemur eitthvað aukabít inn og eitthvað aðeins módernískara en maður á að venjast af þessum disk sem gerður er árið 1992. Það er greinilega búið að fikta eitthvað við þessa útgáfu og ég tek upp diskinn og lít á hulstrið. Á honum stendur "re-released and remixed for america". Beta spyr : "Hey hvað er að, bara búið að remixa smá" og ég svara kryptískt : "Þó það sé gott að þvo suma hluti einstaka sinnum, þá kemur það aldrei vel út ef það er vont lykt af þvottaefninu".
En þetta var bara draumur sem betur fer.
Ég ætla samt að setja lagið sem lag dagsins.
Púff.. stundum er gott að vera alveg útkeyrður....vinnan búin [er alltaf reyndar búinn klukkan 17:00 en stundum er maður lengur]. Eftir vinnu fór ég með hressan alcatel speedtouch 580 router heim í foreldrahúsin þar sem að litla systir fer fljótlega að komast heim af spítalanum, því það var búið að lofa henni að heimilið yrði loksins með almennilega nettengingu svo að hún geti nú skypeast við kærastann.
Eftir þá uppsetningu og steiktan fisk í boði húsins, skrapp ég í laugar þar sem ég gat hlustað á viskuna, spurningakeppni útvarps samfés á rás2 og horft á simpsons og kevin bacon
og ísland í dag til skiptis á meðan ég hljóp mér til heilsubótar. Note to self, taka eitthvað skemmtilegt til að hlusta á næst þar sem að allar hinar útvarpstöðvarnar eru ekki að nást þarna inni af einhverjum ástæðum. Kíkti aðeins út í skítakuldann út í pott þar sem, eins og oft áður, allt er morandi í útlendingum sem koma líklegast af gistiheimilinu við hliðiná. Stundum held ég að sumir þeirra haldi að við innfæddu skilji ekki ensku þar sem að þeir láta oft vaða um ótrúlegustu hluti beint fyrir framan mann..... kannski er maður svona ósýnilegur.
Kíkti með Helga á AVP í gær, eða alien versus predator
. Ég hef tekið eftir því að það er búið að dauðadæma þessa mynd í umræðunni, þó svo að flestir sem segi "oj" hafi ekki séð hana.
Ég segi fyrir mig að þetta er alveg sæmilegasta ræma. Það hefði reyndar alveg mátt gera miklu meira úr þessu snilldar-concepti, sem ég komst fyrst í tæri við fyrir nokkrum árum síðan í fínni teiknimyndasögu, sem á reyndar lítið sameiginlegt með myndinni fyrir utan þessi tvo óvætti.
Slagsmálaatriðin voru langflest ágæt, en atriðin á milli alien og predator voru eins og blautur nörda draumur fyrir gamlan alien fan eins og mig.
Engu að síður kemur myndin frekar illa út í samanburði við hinar myndirnar. Alien
var meira taugatrekkjandi. Aliens
var með meiri hasar. Alien 3
og Predator
myndirnar voru sveittari og hrottalegri. Alien 4
var með meiri stíl.
Því miður var búið að tjúna myndina til fyrir krakka [pg-13] og var frekar lítið um blóðsúthellingar, sem er frekar mikið stílbrot, séu fyrirrennarar hennar teknir í reikninginn.
Kannski ekki mikið um þetta að segja. Þetta var sami leikstjóri skilst mér og leikstýrði Event Horizon sem mér finnst hafa verið vanmetin.
Er annars að hlusta á The Isness með Amorphus Androgynous, aka FSOL, sem er alveg skotheld plata og ef þið hafið ekki hlustað á hana ennþá þá er bara kominn tími til þess ekki satt?
Ég var nýlega að slaka á í heitum potti í sundlauginni í laugardalnum, sem er hverfið mitt og heyri í hrópum út í laug. Þá eru þar svona u.þ.b. 6 stykki af krökkum svona í kringum 10-12 ára, þar af einn af þeim var greinilega að úthúða hinum, sagði m.a. að hann væri ljótur og var með yfirlýsingar um hann og stöðu hans í hópnum. Hinir tóku ekki þátt, en horfðu bara á.
Tvær stelpur sem voru hluti af þessum hóp tóku eftir því að ég var að horfa á og fóru upp úr þurru að útskýra fyrir mér að þessi strákur hefði kallað þær nöfnum og aðra líka þarna og væri "leiðindagaur" eins og þær orðuðu það.
Smá tími líður og ég hætti að spá í þessu, en eftir smá stund þá segja þær "sjáðu" og ég lít við, en þá er sá "ljóti" með allan hópinn á eftir sér farinn að labba frekar rólega og ógnandi að stráknum með kjaftinn, sem gerir ekkert annað en að bakka frá þeim og heldur jafnri lengd á milli þeirra. Endaði strákurinn upp á bakka og virtist ekki þora niður í aftur.
Eins og gefur að skilja var þetta mjög kómískt og í kjölfarið sagði ég við þær að næst þegar hann kallar þær einhverjum nöfnum þá geti þær svarað honum að hann sé nú bara "huglaus aumingi" og það sé miklu verra. Lifnaði aðeins yfir þeim og sögðu þær "jaaáááá!".
Eftir smá stund þegar hópurinn mínus sá með kjaftinn var kominnn í pottinn heyrði ég svo í þeim áframselja þessa hugmynd um "huglausa aumingjann" og hugsaði með mér að strákurinn mundi ekki fá frið fyrir þessu tja svona næstu 2-3 árin.
svona virkar karma víst
Langar að hvetja þá sem kíkja hingað reglulega að kommenta meira, t.d. við myndir og lag dagsins.... og jafnvel bloggið :)
Í vikunni sem er að líða þá fékk ég síðbúna afmælisgjöf frá sjálfum mér. Ný myndavél kom í stað medion hrúgaldsins sem ég var orðin smá leiður á.

Canon Ixy Digital heitir elskan og er sama vél og ixus digtal og powershot, býst við því að ixy sé japanska heitið á henni en Helgi snillingur keypti hana fyrir mig út í japan á gjafaprís.
Helgin var síðan tekin í að vígja myndavélina og afraksturinn er á myndaalbúminu.
Fór á kveðjupartý fyrir árna, en hann er að fara út til japans, á föstudaginn. Bent og sjöberg tóku lagið og hituðu upp fyrir The Zuckakis Mondeyano Project sem er stórskemmtilegt band. Myndbrot af frammistöðu þeirra er að finna hér. Á laugardeginum var kíkt á kveðjupartý kidda skúr, en hann er að fara erlendis til náms, það er eins og að allir séu að flýja landið, og meðal gesta var hann Eldar, en hann er í heimsókn á klakanum ásamt frúnni.
Svo var helgin hrist úr kroppnum með að taka netta göngu á esjuna á sunnudeginum.
hef verið svo slakur að skrifa hérna, að hér kemur brandari í skaðabætur
A wife was making a breakfast of fried eggs for her husband.
Suddenly her husband burst into the kitchen.
"Careful ... CAREFUL! Put in some more butter! Oh my GOD!
You're cooking too many at once. TOO MANY! Turn them! TURN
THEM NOW! We need more butter. Oh my GOD! WHERE are we
going to get MORE BUTTER? They're going to STICK!
Careful ... CAREFUL! I said be CAREFUL! You NEVER listen to mewhen you're cooking! Never! Turn them! Hurry up! Are you CRAZY?
Have you LOST your mind? Don't forget to salt them. You know you
always forget to salt them. Use the salt. USE THE SALT! THE SALT!"
The wife stared at him. "What the hell is wrong with you?
You think I don't know how to fry a couple of eggs?"
The husband calmly replied, "I wanted to show you what it
feels like when I'm driving with you in the fucking car."
Það var laugardaginn 21.ágúst klukkan 11:00 sem að ég vaknaði og mundi eftir því að stefnan hafði verið tekinn á það, kvöldið áður, að brölta menningarnóttina sem að þá lá fyrir.
Ég arkaði niður í vinnu og prentaði út rúmlega 22 blaðsíðna dagsskrá og hitti svo helga [barrow] niðrá svarta kaffi, en þar var nokkrum mínútum varið í að strika út viðburði sem að hvorugur okkar hafði áhuga á og hins vegar merkt við viðburði sem við máttum ekki missa af.
Að því loknu vorum við komnir með nokkuð viðráðanlegan fjölda af viðburðum, en á dagskránni voru í heildina rúmir 200 viðburðir. Til þess að hámarka afköst þá bjuggum við til menningarskipulagsblað :
Svona ef þetta skilst ekki þá er tíminn þarna á lóðrétta ásnum, en lárétti ásinn segir til um mikilvægi viðburðana.
Þegar þarna er við sögu komið er klukkan að slá í 14:00 og við drífum okkur niður á mál og menningu til þess að grípa Jón Atla og Þorstein Guðmundsson. Því miður var Þorsteinn eitthvað síðar, en við náðum upplestri Jóns Atla á bók sinni sem kemur út á JPV útgáfunni síðar á árinu og mér er óhætt að fullyrða að þarna hlýtur að vera skemmtileg bók á ferðinni, amk miðað við upplesturinn hans.
Að því loknu fórum við niður á klink og bank til að skoða markaðinn niðrí berlín, sem var svona upp og ofan fyrir utan afbragðsflatkökur sem seldar voru á staðnum, en ég nelgdi af mynd af skemmtilegu listaverki sem búið var til úr niðurklipptum vatnsflöskum.
Eftir klink sáum við okkur færi til að koma við í Íslenskri erfðagreiningu á leiðinni niður í bæ og grípa Eivör og Bill sem þar voru að láta ljós sitt skína, en því miður fengu fleiri þá hugmynd og sáum við lítið tónlistamennina, en við heyrðum þó. Á leiðinni niður í bæ kíktum við á loftbelgjavesen á háskólaliðinu.
Þar sem loftbelgjavesenið gekk ekki of vel þá fórum við niður í bæ, hlupum í gegnum menningarslys bylgjunnar og stukkum inn á GhosTigital, 10 klst program sem var líklegast jafn skemmtilegt eins og það var leiðinlegt á köflum, en já skemmtileg tilraunamennska, og magnað að það hafi verið í Listasafni Reykjavíkur. Einnig sáum við þar Kenjarnar með Goya og mjög skemmtilegt videoverk sem hét 15 sekúndur og var gert með krökkum úr Vinnuskólanum.
Þarna vorum við komnir með heilbrigðan skammt af list, svo það var kominn tími til að bleyta aðeins upp í þessu með einhverju allt öðru, og þá varð Gospel messan fyrir valinu.
Algjör snilld að sjá þetta lið poppa svona og prestinn í fullum skrúða bíða rólega og reyna síðan að messa yfir fólki.
Við entumst ekki meira en eitt lag yfir þessu og fórum á myndasögupallborðsumræðurnar, eða comic panelinn eins og við kölluðum það, og vorum orðnir vongóðir eftir smá intelektúal umræðum, sem var kannski til of mikils ætlast, en þarna voru mest megnis umræður um hversu bágt myndasagan ætti á íslandi [og vesturlöndum] og af hverju það væri ekki jafn útbreitt og í japan. Við gáfumst upp á slíku væli eftir rúmar 15 mínútur og fannst tíma okkar vera betur varið í almennilega menningu og fyrir valinu varð Rat Race, eða kapphlaup skrifstofumanna með gsm síma og skjalatösku.
Næst lá leið okkar á Grettisgötu og varð klukkan orðin 17:30. Þar sýndist okkur á dagskránni að hljómsveitin Flís væri að spila, en amk var þetta brilliant band með jazz spúnkið á hreinu.
Einnig var þar markaður og lét ég plata mig til að kaupa mér skemmtilega peysu sem reyndist of lítil.
Næst kíktum við á Dillon en þar var eitthvað næstum-því sveitt band að spila, sem kallaði sig Light of the High mind... þeir voru áhugaverðir í nokkrar mínútur.
Time lapse hafði vakið áhuga okkar á dagskránni, en það var í versluninni Oni. Á leiðinni þangað kíktum við á markaðinn í bakgarði Sirkus, og lét ég þar til leiðast og verslaði tvo jakka.
En time lapse var s.s. video sýning af nokkrum time lapse skotum sem tekin höfðu verið í reykjavík og var frekar vel heppnað þrátt fyrir að hefði mátt vera lengra.
Þegar hér er komið við sögu þá eru menningaróvitarnir orðnir svo hungraðir að stefnan var tekin á american style, en eftir að það var of mikið af hyski þar, þá varð Pítan að duga.
Þegar ég og helgi snerum aftur endurnærðir í miðbæinn var allt sett í botn því að nú átti að taka menningarnóttina hálstaki og krista allt líf úr henni .
Eftirfarandi atriðum náðum við í engri sérstakri röð:
ragnheiður gröndal og föruneyti
einhverjir krakkar að missa sig
hiphop punktur is í boði hins húsins
Jagúar [voru mjög þéttir og flottir]
Ígor, og sænska hiphoppið victorious [sem voru ekki alveg myndarinnar virði]
barátta góðs og ills
góða sigraði vitaskuld :)
raggi bjarna og hljómsveit stóð fyrir fjörinu í máli og menningu
hinn ágæti forest whitaker lét sig ekki vanta á menningarnótt frekar en 100 þúsund aðrir sem voru að skemmta sér, og amk 10 þúsund fram undir morgun.
Okkur fannst þetta amk það vel heppnað að við ætlum að kýla á þetta með svipuðum hætti eftir ár.
p.s. tík ársins er pétur blöndal.
hinn væni kjerúlf er búin að slaka í mig restina af myndunum úr skóga-ferðinni og eru þær á viku 28 í myndaalbúminu
Vá þetta var alveg mögnuð helgi. Kíkti á laugardaginn út á skógarfoss þar sem búið var að skipuleggja litla jazzhátíð. Veðrið hefði mátt vera betra, en Andrea Gylfa, Jóel og félagar gerðu kvöldið eftirminnanlegt með flottum tónleikum, og vonandi að þessi leikur verði endurtekinn.
Daginn, eftir , sunnudaginn, þ.e. í dag fengum við síðan ótrúlega flott veður og eftir smá local útiveru þá tékkuðum við á dyrhólaey, sem er vitaskuld frekar fallegur staður.
klink og bank fá props fyrir flotta tónleika peaches sem ég er að koma af núna. svona næstum því amk, hljóðkerfið var stundum leiðinlegt. Performancinn hjá Peaches var þó frábær... leiðinlegt ef þið hafið misst af því...
Egill Snæbjörns var í hlutverki upphitunar, og gerði hann frekar lítið annað en að stytta biðina í Peaches.. Ég hef reyndar aldrei séð hann spila áður, en ég vona að það sé venjulega betra ...
Annars nenni ég ekki að rekja í gegn tónleika peaches, því að sjón er sögu ríkari, og það var alveg nógu dýrt inn að ég ætli eitthvað að fara að deila þessu með ykkur. :) [ekki það að þetta hafi ekki algerlega verið þess virði.]
Þar sem að tónlist er ekki alvörulist heldur bara drasl í hátölurum, þá hefur fjölskyldan loksins eignast alvöru listamann*, og það er systir mín bergrún, en hún lætur ljós sitt skína hér Þar sem hún var bara að kýla þetta í gang, þá er þetta ekki orðið troðið ennþá, en hún er efnileg.. þannig að fylgist með... [skelli link í hægri menu-inn]
*hún er reyndar löngu farin að tjá sig listrænt, en þetta er svona fyrsta veraldarvefs-aðgengilega tjáningin ef mér skjátlast ekki
hef verið vel latur með að skrifa hérna inn upp á síðkastið...... og held að ég haldi því bara áfram.
annars er mig farið að langa til að breyta um útlit hérna.... geri það kannski við næsta tækifæri
Ég held maður geti bara ekki beðið um það betra...
Koma heim eftir vinnu skella sér út á svalir í bakandi sólbað með wifi-ið á fullu, organic grooves á fóninum og stóra krús af íste mér við hlið....
Nú þarf bara einhver nördinn að finna upp lausn við því að sólinn truflar að maður sjái almennilega á lcd skjáinn... og ég hef prufað sólgleraugu og það gerir málið bara verra.
Er búin að húka heima í allan dag með sleipann nebba. Fékk netta hálsbólgu og grín seinasta sunnudag. Ekkert slappur en bara svona fullur af slími og einbeitingarlaus.
Kíkti í gær og hjálpaði settinu lokasprettinn við flutningana.... rúmir 8 klst af stanslausum burði, ekki alveg 17.júní-inn sem ég hafði hugsað mér, en horfði bara til helgarinnar í staðinn, en nú er þetta nefógeð farið að vera fullmikið.
Jæja það þýðir lítið að kvarta, kannski verð ég hressari á morgun og kíki í grill til gunna og nonna.
bæ ðe vei - nýjar myndir komnar inn
server druslan búin að vera niðri síðan á föstudaginn.... urrr ef hún verður ekki stillt núna, þá held ég að ég taki hana bara heim.
Ermm var eitthvað smá klístraður morgun, ákvað bara að vera heima í stað þess að fara að vinna... já, ég er að vinna í sumarfríinu mínu, svolítið sorglegt kannski, en minns þarf að klára svolítið extra.... En ég var eitthvað óþarflega tussulegur í gær, sem þýðir að ég er kannski að verða veikur sem er nei. En það var svosem helling að gera'roundthehouse eins og að spúffa það aðeins til og þvo garmana.
Því miður er íbúinn fyrir neðan mig eitthvað að kalka og skildi lyklana sína eftir í þvottahurðinni og skildi líka hálfþveginn þvottinn eftir síðan í gær... Blast!
Lagði í það áðan að skipta um msn addressu, s.s. losa mig við dauða email addressu sem ég hef ekki notað lengi yfir í alvöru e-mail addressuna mína.... Hélt það yrði mikið mál að flytja alla contactana á milli, en það er bara frábær export-to-xml fídus í msn messenger og síðan aftur import, kom mér smá á óvart.
Hvað ætli það séu margir af þessum 105 contacts, yfirgefnar addressur? Það væri ekki vitlaust að láta plaxo sjá um contact-listann, en það mundi náttúrulega virka best ef allir notuðu plaxo.
Skondið hvað fréttablaðið fær mikla digital meðferð hjá mér. Ég uploada því úr anddyrinu hér niðri rétt fyrir morgunmat og lít yfir það með morgunmatnum og tek inn allt áhugavert, og að því loknu þá fer það beint í "recycle bin". Hef einfaldlega enga trú á því að sanka svona að mér. Ef það væri eitthvað geymanlegt í því þá sæki ég bara fréttablaðið á netinu, screenshotta það, og geymi hér.
Jæja, núna hlýt eg að geta komist að í þvottahúsinu.
Fór á á hressingarskálann á föstudagskvöldið, sem var ágætistilbreyting við staðina sem maður fer alltaf á. Ekki mikið frá því að segja nema að þar voru meðal annars hópur íra [eða skota] sem voru að steggja einn félaga sinn og voru orðnir vel fullir á dansgólfinu.

Síðan skellti diska snúðurinn á laginu rock dj með robbie williams og þá fór sko hinn smávaxni íri, sem var verið að steggja, í brjálaðan ham og fannst það allt í einu ótrúlega sniðug hugmynd að klæða sig úr öllum fötunum og dansa smá.
Fólk fékk náttúrulega smá sjokk, en fólk vildi greinilega ekki draga úr villtu ímynd íslands, svo að allir klöppuðu bara með. Held samt að fólki hafi hætt að lítast á blikuna þegar félagar hans fóru að hella yfir hann bjór og víngosi. Eftir þetta frekar súra móment, þá hjálpuðu þeir honum í og þar sem ég var vopnaður myndavélinni fannst mér þetta kjörið tækifæri til að brúka hana og vona bara að írarnir séu ekki lengur á landinu.
Eins og ég minntist á áður, þá er þessi server greinilega kominn með rétt á helgarfríi, sem mér hafði ekki tilkynnst um, þannig að vefurinn minn var ekki uppi um helgina.... sorp.
Ágætishelgi annars, kíkti út á föstudaginn á "lífið", tékkaði á Naqoyqatsi á laugardaginn, sem er seinasta myndin í quatsi "trilógíunni", sem ég get hiklaust mælt með við þá sem hafa gaman að flottri kvikmyndatöku og öðruvísi myndum.
Svo tékkuðum ég og gulla á sjómannadagsstemningunni á sunnudaginn og kláruðum að horfa á Twin Peaks þættina... allir 29 búnir núna ... "how's annie... eheheh..how's annie"
Með því skemmtilegra sem ég hef horft á síðastliðin ár, ekki spurning að ég ætla að verða mér út um dagbók lauru palmer og ferðast til bandaríkjana, til Twin Peaks, sem er alvöru staður og heitir Aurora í Washinton fylki
Jæja, þá er kallinn bara búin að fá sér myndavél.
Engin ofurvél á ferðinni heldur bara ódýr medion dolla úr BT. Tók smá í dag og bjó til myndaalbúm. Verð líklegast eitthvað duglegur að taka myndir amk næstu daga.

[skjárinn er seldur]
mistubishi diamondtron diamond plus 100e, notaður, síðan 1999, myndlampinn ágætur [ekki frábær en ágætur.. enda þetta gamall], læt hann fyrir lítið...
ef þið hafið áhuga sendið mér tölvupóst....ekki komment [ breakb @ centrum . is ]



Svo virðist sem ég hafi ekki gert nógu sveiganlegan kjarasamning við þjóninn minn, en hann rýkur alltaf í frí á svona hátíðarhelgum. Ég mundi sparka honum og ráða nýjan, en það er svo erfitt að fá góðan þjón, auk þess sem það er alltof mikil vinna að kenna honum allt það sem gamli kann...
ég þyrfti kannski að taka minn afsíðis og vinna aðeins í honum.... ef til vill mundi það nægja.
afskaplega er hressandi að tölta niður í sund strax eftir vinnu... hver veit nema að mar slái þessu upp í vana.... ég sundkall ? nei þú sundkall [5aur]
leiðinlegt samt hvað world class hefur rænt útsýninu.... og úff hvað óhljóðin eru svakaleg í heitupottunum [sturt í niður hljóðin]
Þetta er svakalegt... er búin að vera allt kvöld að reyna ásamt pops að koma saman nýja skápnum hérna heima, sem reyndist meira challence en öll ikea húsgögnin sem ég hef fengið að berjast við. Og þetta kláraðist ekki einu sinni í kvöld... sem þýðir að annaðkvöldið fer líklegast að góðum hluta í þetta líka.
Annars fer allt hér að komast í betra horf... skápurinn kominn, comfystóllinn og svona... eina sem verður þá eftir er að finna mér einhverja framtíðar skrifborðsaðstöðu og þá er þetta nokkuð solid.... geisp annars og zzz
Það hafa verið mjög góðar móttökur við lagi dagsins og hafa fleiri góðir bæst í hópinn sem nú telur eftirfarandi konfekteyru auk mín: frimma, jónasar, krilla, guðlaugs, arnar, svenna og togga.
Þökk sé hinum síhressa alla, eða öðru nafni activealli , þá er lag dagsins loksins komið í tímaröð, semsagt nýjasta lagið efst.
Einnig er hægt að smella á nafn hvers einstaklings til að fá lögin í mp3 spilarann og eitt smell til að fá nýjasta frá öllum í mp3 spilarann. Þá held ég að ég muni ekki gera neitt meira virknislega séð fyrir þetta í amk langan tíma... ekki nema mögulega setja inn commenta kerfi.
Kíkti í eurogrill partý í gær hjá Bjarna Guð, og verð að mæla með að grilla kjúklingabringur... það er óvitlaust. Ég borðaði tvöfaldan skammt, sem var þó lítið á við suma sem að torguðu 600 gr nautasteikum OG drógu aðra að landi... vá
Annars er það að frétta frá vígstöðunum að þetta er allt að koma hérna á nýja heimilinu... snúruskráningin er búin, og hún var ekkert smá leiðinleg, en á eftir að spara mér hausverk og skápapláss. Ótrúlegt hvað maður áttar sig á því hvað maður á mikið af dóti þegar maður tekur það saman.
Hvað á maður t.d. að gera við 56 kbps pcmcia módem ?
Yfir í annað...
Sjálfstæðismenn hafa greinilega mikið bein í nefinu fyrst þeir eru tilbúnir til að sitja þegjandi á meðan formaðurinn verður sér gjörsamlega til skammar með yfirlýsingum og samsæriskenningum sem bera vott um .....tja.. að eitthvað sé ekki í lagi.
Bein í nefinu segi ég..... já, en ef til vill þá væri meira bein í nefinu, ef þeir hefðu kjark í sér til að setjast niður og eiga gott spjall við manninn. En þetta er erfið skák sem þeir eru að spila, því ef að menn setja sig upp á móti formanninum þá gætu þeir verið að fremja pólitískt sjálfsmorð innan flokksins.... ég er hræddur um að ástandið eigi eftir að versna áður en það skánar. Hver veit nema að þetta eigi eftir að kljúfa flokkinn á endanum.
Ég trúi ekki að mér er að takast þetta, en ég setti mér það fáránlega markmið að ég myndi skrásetja allt sem færi inn í geymsluna, og það er á góðri leið með að takast á þessu formi:
hlutur - tegund - kassi
t.d.
staðarnet - bók - 103
..og er excel að virka ágætlega til þessa verks. Ég tók þó auðveldu leiðina út þegar það kom að plötusafninu og skrifaði "plötur.... helling af plötum"
Nú er bara að sjá hvort maður hafi balls til að taka snúrurnar sömu tökum og skrásetja þær allar á þessu formi.
tengi - tengi - lengd
eða t.d.
mini jack kk - stereo rca kvk - 2 m
spurning hvort maður endar á kleppi ef maður gerir það ?
Flutningarnir eru búnir.... og ég búin að sofa eina nótt í nýju íbúðinni, og næstum því búin að taka alla kassana upp og skutla í geymsluna.
Ég er ekkert smá sáttur við íbúðina... hún er að virka betur á mig en ég bjóst við. Nú er bara að redda sér sófa, borði og ýmislegu öðru góðgæti.
Nú er komið að því að ég fari að kveðja íbúðina.... Ég er búin að pakka niður í kassa með hjálp systur minnar hennar sigrúnar og henda húsgögnum sem voru ekki lengur að virka og nú er komið að seinustu eða næst seinustu nóttinni hér á grandanum.
Ekki síðar vonandi en eftir helgi þá verð ég búin hreiðra um mig í nýju íbúðinni minni þar sem fuglarnir syngja fallegt lag og tónlistin er ávalt í loftinu.
Ef að sumardagurinn fyrsti hefði ekki verið á þeim degi sem hann var, þá væri ég í dag að fá afhenta íbúðina sem ég get fljótlega kallað mína.
Já ef ég var ekki búin að taka það nógu skýrt fram, þá er ég að kaupa íbúð á háaleitisbraut. Ég get varla beðið eftir því að flytja inn og innrétta og leika mér með "rýmið".
TwinPeaks sessionið hélt áfram í vikunni og bættust rúmlega níu þættir við maraþonið. Staðan á því er þá tæplega tveir þriðju, og er það ágætt afrek. Hver veit nema að maður geti lokið þessu á þriðja kvöldinu.
Kíkti á breakbeat-ið í gær og það var fín stemning, helling af gamla krúinu sem er lífsnauðsynlegt fyrir gamla kempu eins og mig. Kallinn tók líka nokkur dansspor fyrir reggae þrungna dnb tóna dj baily, en þar sem að það er vinnuhelgi þá lét maður ekki tilleiðast að vera of lengi og náði rúmlega 6 klst svefn.
Það liggur fyrir að setja nýtt útlit á vefinn, hann kiddi er að lána hjálparhönd við það enda er ég engin hönnuður.
Eftir langa leit þá fann ég íbúð og hefur kaupanda og seljanda samist um uppsett verð..... og ég er að hugsa, hey á maður ekki að fagna því. Breakbeat hyskið ætlar að fagna afmæli í kvöld sem er ágæt lending, en ég er að spá... er einhver stemning á fólki annars?
"Your IQ score is 127
This number is based on a scientific formula that compares how many questions you answered correctly on the Classic IQ Test relative to others.
Your Intellectual Type is Word Warrior. This means you have exceptional verbal skills. You can easily make sense of complex issues and take an unusually creative approach to solving problems. Your strengths also make you a visionary. Even without trying you're able to come up with lots of new and creative ideas."
Alltaf gaman að taka próf og svona, þetta próf, er kannski ekki heppilegast fyrir íslending þar sem það er á ensku, en fleiri sniðug próf eru á persona.is
Í gær faldi ég fyrsta geocache-ið mitt. Eftir að fyrsti geocache fundurinn lukkaðist vel þá langaði mig að finna fleiri, en komst síðan að því að hin eru öll á norðurlandi og ætla ég að geyma þann morðakstur þangað til síðar í sumar.
Ákvörðun var þá tekin um að búa til nýtt cache og kom lolla með mér í það mission í gær.
Við fundum brilliant stað í gær, Valahnúk, Reykjanesvita og hefur cache-ið verið samþykkt og alles á geocaching.com
Því miður tók ég ekki með mér almennilega mynda vél þannig að nokkrar gémsamyndir verð að nægja.

Alveg magnað útsýni frá Valahnúk.

Líka flott í hina áttina...... í átt að usa :)

Reykjanesviti séður frá Gunnuhver. Alveg alien landslag þarna á köflum.
Hérna eru síðan myndir af svæðinu sem aðrir hafa tekið
Hvaðan ætli orðið páskar komi, og ætli easter sé tilvísun í austur ?
Eitt finnst mér líka stórskrítið og það er hvers vegna í ósköpunum það gilda einhver lög um opnunartíma skemmtistaða á þessum tímum. Það er ekki eins og að allt sé lokað, t.d. 10-11 alveg í fullu fjöri á föstudaginn langa.
Annað sem vakti athygli mína var að outlook-ið mitt sagði mér að föstudagurinn langi héti good friday. Mér skildist að hann væri langur vegna þess að allir væru svo down út af jesus en samt er hann good friday á ensku..
Skírdagur heitir maundy thursday ? ég fattaði það ekki alveg, þannig að ég kíkti á google og fann að maundy er úr latínu, "mandatum", og þýðir boðorð og eftir mínum skilningi þá tengist þetta útidúr í jóhannesar guðspjalli þar sem að jesus kemur með nýtt boðorð sem er eitthvað á þá leið að allir eiga að elska alla , gott að það var ekki of flókið, og fer síðan að þvo fæturnar á lærisveinunum.
nú var ég alveg í sunnudagaskóla í einhvern tíma þegar ég var lítill en ég man ekki eftir neinum fótaþvotti....
jæja, allaveganna þá voru þetta fínir páskar, amk fyrir buddunna þar sem ég var að vinna alla páskana og það var ágætt.
Því miður veit ég ekki þýðinguna á þessu, en fyrir nokkrum mánuðum síðan rakst ég á hobbý-ið geocache sem er svona nútíma "fjársjóðsleit".
Hugmyndin er þessi. Einhver felur box, t.d. tupperware, með ýmislegum hlutum í á einhverjum stað. Það þarf að vera nógu vel falið til að það finnist ekki af þeim sem er ekki að leita að því, en samt nógu sýnilegt til að sá sem er að leita að því geti fundið það.
Ég ákvað í morgun að finna fyrsta geocache-ið mitt og dróg gullu með mér í missionið. Það er kannski pínulítið svindl þar sem að ég bý aðeins nokkra kílómetra frá því, en samt fínt svona fyrsta cache. Eftir ágæta leit þá fundum við það, ég skildi eftir geisladisk með tónlist frá skynvillu krúinu, við kvittuðum í loggbókina og tókum sleikjó úr sem hafði verið skilin eftir í boxinu, þar sem hann var farinn að sóða aðeins boxið út.
Annars er þetta stórskemmtilegt og nett skuldbindingalaust hobbý sem hver sem er getur gert. Næst á dagskrá er bara að kíkja út á land við tækifæri og finna fleiri cache, kannski maður reddi sér gps græju fyrst.
Frekari upplýsingar um geocache eru hér
fékk allt í einu svona mikinn nördahvata og langaði að fá mér tattú með
"101.104.104.111" [án gæsalappana]
eða
01000001
01000100
01000100
01001001
hefði eiginlega frekar viljað fá mér ip töluna.... samt alveg svona prívat djókur dauðans líklegast, spurning samt ef ég plata einhvern listrænan sem ég þekki til þess að hanna það flott, þá gæti það virkað
Ég hef aðeins verið að catchup á smá glápi upp á síðkastið. Neverwhere er bresk mínísería eftir samnefndri bók neil gaiman og lítur svona sæmilega út, hefur þó smá lowbudget fílíng á sér, en ég ætla ekki að dæma neitt amk fyrr en ég hef séð meira en einn þátt.
Lexx er snilldar kanadísk/þýsk sería sem ég hef verið að kíkja af og til í nokkur ár. Þátturinn sem ég kíkti á í gær var brilliant, heitir Prime Ridge og er í fjórðu seríu. Aftur á móti til að ná Lexx þá þarf mar eiginlega að horfa frá byrjun [eða að minnsta kosti horfa á fyrstu seríu sem eru fjórar spólur.
Hérna kemur eitt kvót út lexx :
I've killed mothers with their babies. I've killed great philosophers. Proud young warriors and revolutionaries. I've killed the evil, the good, the intelligent, the weak...and the beautiful.....but it's been a while since I slaughtered a whole room full of petty bureaucrats!
ég er frekar upptekinn þessa dagana í og utan vinnu þannig að ég hef lítið geta uppfært eða skrifað.
annars er ég kominn í fjögurra daga vaktafrí sem er brilliant
Hérna eru tveir stórskemmtilegir hlutir
músamotta fyrir karlmanninn og glas fyrir neikvæða
ég held að ég hafi unnið kvefhelvítið..... yes...
hákarlalýsi er málið
Þegar ég skellti blogginu upp fyrr í vikunni þá skrifaði ég að margt hefði drifið á daga mína, jákvætt og neikvætt síðan að vefurinn hrundi síðasta nóvember og það er kannski kominn tími á að tala hreint út um það.... eða að minnsta kosti eins hreint eins og mér finnst vera við hæfi hérna.
eftir að við höfðum hætt saman og síðar byrjað aftur saman þá áttum við ásta mjög góðar stundir saman. hún útskrifaðist síðan úr fb með hæstu einkunn á upplýsingatæknibrautinni og ég var alveg rígmontinn.
fyrst við vorum á svona góðu rúlli þá ákváðum við að taka okkur saman í andlitinu og hætta að reykja.... einnig að fara að stunda hreyfingu af meiri krafti... sem og við gerðum... ég fer reglulega í ræktina og hún fór að stunda taekvando...
en núna erum við hætt saman ..... ég veit að oft eru sum pör svona að þau byrja og hætta saman endalaust.... en ég hef það á tilfinningunni að þessu sé endanlega lokið. ég ætla ekkert að fara út í nein smáatriði, þar sem það ætti bara að vera á milli okkar
svona er þetta bara..... og tilgangslaust að velta sér of mikið upp úr þessu
það jákvæða er að ég er ennþá reyklaus og sakna þess ekkert að reykja.... ég er þessa dagana að beina allri minni athygli í að læra, þ.e. þegar ég er ekki að vinna eða hanga með félögum. og svo er ég líka að.. [nei ég held að ég bíði með að skrifa um það.... ennþá leyndó :) ]
Er búin að fá mér 3 lýsisperlur í dag ásamt green tea bollum og aloa vera og er að rembast við að hjálpa ónæmiskerfinu á að sigrast á þessum óvætti.....
Þegar maður gleymir því hvað lýsið er öflugt og gleymir að kaupa nýtt þegar það klárast þá fær maður skítinn. Ég finn að ég er að taka inn á mig kvefið sem allir eru að fá.... its only a matter of time núna...
nema hvað.... ég gæti sagt kvefinu stríð á hendur og keypt mér nýtt lýsi á stundinni... hmm im gonna do it.... sjáum hvort ég sigra kvefið áður en það neglir mig niður
Mig dreymdi draum í nótt. Ég var staddur niðrí miðbæ reykjavíkur og það var spenna í loftinu. Það var hlaupið og náð í mig og sagt við mig að ég yrði að takast á við málið.
Ég vissi ekki hvað "málið"snerist um nákvæmlega, nema það að það væri einhver manneskja sem væri hættuleg og á henni væri von.
Við hlaupum að lækjargötu þar sem að hópur fólks er saman komin. Fljótlega kemur bandarískur kaggi askvaðandi að og út stígur stríðsmær í anda heavy metal blaðanna
Hún er greinilega ótrúlega reið og ætlar að ráðast á næsta mann sem að kemur að henni. Þar sem þetta er minn draumur þá er ég sjálfkjörin í að "takast á við málið", en þetta er ekki svona ofurhetju draumur heldur bara svona raunsæi þannig að ég er eitthvað að reyna að tala til hennar... .eins og það stoppi hana eitthvað. Hún hreytir bara ókvæðisorðum í mig og veitist að mér.
Hún heldur á risaspjóti eða svona spear sem er með einhverjum búnaði framaná, sem ég sé að er ekkert vinalegur. Eftir að ná að forða mér frá því nokkrum sinnum næ ég að grípa í hann og afvopna hana.
Eða svo ég held.
Næst þá er hún farin að taka spörk að mér og þá sé ég stórhættulega langan og mjóan hælapinna sem er næstum því rokinn á kaf í mig rétt áður en ég næ að koma mér undan honum.
Eftir nokkur close calls þá virðist sem hún þreytist nokkuð snögglega og þegar betur er að gáð er reiðin að breytast í sorg og grátur og þá vaknaði ég.....
vírd one....
Já það hefur svo sannarlega liðið langur tími síðan að bloggið sá seinast dagsins ljós. 30.nóvember 2003 var dagurinn sem blogg maskína 01.is hrundi, en jafnfram var það sá dagur sem að vikuleg afritataka af vélinni fór fram og afritaðist allt bloggið í heild sinni heim til mín......heppinn. [props til odds]
Ég er búin að sakna bloggsins frekar mikið [ahhh] en með nýrri vél kemur nýtt netfang esc.chicorockstar.com í stað addi.01.is, enda var kominn tími til að nota sér lénið sem verslað var fyrir www.chicorockstar.com.
Fyrir þá sem eru ekki í reglulegu sambandi við mig þá hefur frekar margt á daga mína drifið síðan bloggið var seinast uppi... jákvætt og neikvætt.... meira að því síðar....
þangað til... im back baby
Jæja, þá er ég búin að fara í mri, magnetic resonance imaging, eða segulómun eins og það er kallað.
45 mínútur af því að liggja mjög kyrr og hlusta á lætin í græjunni.... klank klank klank [á mörgum mismunandi hröðum] .... athyglisvert.
Ég get svarið fyrir það að ég fann á tímabili segulinn eða útvarpsbylgjurnar eða hvað þetta nú var, á ferðinni í heilanum á mér.... fann svona þrýsting færast niður hausinn á mér, og eftir sat svona tímabundinn hausverkur.....
ég minntist á þetta við hjúkkuna / mri tæknimanninn eftir á.... hún gaf nú ekki mikið út á það, en þegar ég sagði við hana að ég ætti það til að fá höfuðverk út af gsm notkun, þá sagði hún að gsm símar væru skaðlegir og maður ætti að nota amk heyrnartól þegar maður væri að tala í gsm síma.... "þetta er alveg vitað mál...."
skondið samt að það er ekkert mikið talað um þetta..... ég sé bara fyrir mér heilu kynslóðirnar verða minnislausar eftir 20 ár eða svo.
Hékk í gær upp við að setja upp bluetooth usb adapterinn sem ég verslaði ódýrt út í berlín.... eftir smá mauf og lélegar leiðbeiningar, þá kom ég þessu loksins upp.... þannig að núna:
*autosynchar outlook hjá mér contacta, calendar og notes sjálfvirkt við símann [þegar ég er í færi]
*get ég fjarstýrt winampinum mínum með gemsanum
*keyrt hvaða forrit sem er, t.d. slökkt á tölvunni með gémsanum....
já .... einstaklega upplífgandi að fullnægja svona gerfiþörfum....
Hérna er on the fly skíta headfónamix af klakanum.... lagi sem ég spilaði fyrst úti á paradies.... kannski að ég geri meira að því að láta svona blóðhráar útgáfur af lögum hérna
jæja, þá er fríið litla að verða búið...... flýg heim eftir 4 klst. Er búin að taka því rólega seinustu 3 daga, bara chilla og versla smá, tóbak fyrir örní, usb-blútúþ júnit, smá dót fyrir ástu.... sem nota bene mig hlakkar ekkert smá til að hitta þegar ég lendi.
Síðan er það bara brumm í vinnunna á morgun klukkan eitt á morgun... og buisness as usual tekur við...... until then.... c-yz
Strax kominn sunnudagur...... úff
Ég er á Marena bar klukkan hálf ellefu á sunnudagsmorgni ..... útskýri á eftir....
Smá flashback á seinustu daga.
Ætlunin var að fara til berlínar og spila á klúbbnum paradies, og það gekk eftir en allt í einu á miðvikudeginum klukkan 14:30 komst ég að því að söngkonan mín, hún ágústa myndi koma með mér... það var semsagt ekki ákveðið en kom bara upp á.
Ég tók flugið til stansted og þaðan til berlín og var tekið vel á móti mér af kharis... talaði við ágústu og hún sagðist taka flugið næsta morgun.
Við tókum því rólega daginn eftir á. Kíktum í höfuðstöðvar ableton og fengum live 3.0 hjá þeim.



Síðan heyrðum við í Ágústu og hún sagði okkur frá því að lestinni sem hún myndi taka frá frankfurt hefði seinkað vegna sprengjuhótunnar [hasar hasar] ..... svo að við fórum um kvöldið á ostbahnhof stöðina og biðum í 2 klst eftir henni.... og um leið og við gáfumst upp og tókum lestina burtu þá hringdi hún og við urðum að snúa strax við... eftir að draslinu var komið fyrir í íbúðinni hjá kharis þá fórum við og jane, kærasta kharisar, á írskan pöbb, þar sem engin talaði ensku, og duttum rækilega í það...... og þýsk stelpa helti gerviblóði í andliti á mér til að fagna "halloween" þjóðverja daginn eftir...
loksins þegar við vöknuðum á föstudeginum þá eyddi ég deginum í að gaura til tónlistina með lappanum mínum og alles klar.... fórum og stilltum upp á paradies og prófa hljóðkerfið. kvöldið tókst mjög vel, og allir voru mjög ánægðir með giggið..... líka við :) .... nema hvað að það var ekkert spes gaur að spila á undan okkur í svona klst og fólk fór í smá óstuð....
síðan í dag [eða gær] semsagt laugardeginum þá fórum við og versluðum í notuð föt-búð og ég fann brjálaðan jakka, sem kostaði aðeins 5 þúsund kall..... [svona lock stock gangster jakki] .... og fórum síðan á æðislegan veitingastað sem heitir Kafka þar sem ég fékk bestu kjúklingabringu sem ég hef smakkað...
þar á eftir fórum við á trendy bar sem heitir molotov cocktailbar og hengum "kúl" í smá tíma. Vorum samt orðin svolítið þreytt [eftir seinustu tvo daga] en nokkrir black russian áttu að koma því í lag....
Þar á eftir [og eftir að ég sagði kharis og jane frá "metrósexual" [úr south-park] fórum við á massívan gay bar sem hét Blue Rose... sem var fáránlega fluffy
síðan fórum við bara á rápið aftur í hverfið þar sem kharis á heima [kreutzberg] og reyndum að finna almennilega pöbba..... hitti einn laumu nasista sem var vel drukkinn og hélt hann væri kominn í feitt í að hitta fellow víking og norðmann..... úff... losnaði við hann og fórum á stað sem heitir Wiener Blut [eða pylsublóð].....
fyndið hann var eins og svona slæm kópía af tarantino bar..... og við vorum orðin ofurkúl þannig að við vorum í stuði..... dj-inn spilaði "these shoes where made for walking" með þýskum texta og stuð...
klukkan var orðin um fimm þá og þar sem að ágústa varð að taka lestina aftur um 6-7 fórum við bara með henni út á lestarstöðina.... hengum þar og sötruðum bjór og töluðum pólitík og vorum [erum] orðin ansi austurþýsk... síðan kvöddum við ágústu og 2 tímum síðar eftir spjall og sumbl [og að við ákváðum að sleppa því að fara að sofa] þá löbbuðum við þaðan og aftur í húddið hans kharisar.....á leiðinni hittum við hreinræktaðan stoltan eldri þjóðverja sem sagði okkur kúl túristahluti á leiðinni og sýndi okkur kirkju sem er þar sem múrinn liggur [berlínarmúrinn] .... eftir það ráfuðum við á Marena bar.... sem er með vírlaust internet [snilld] og síðan byrjaði ég að þetta.... og pantaði mér irish coffee.......
og á eftir er það ofur hlaðborð.... sunnudagshefð hjá krökkunum........
Jæja, þá er maður í niðurpakkningunum. Ég tek IE á morgun á leifstöð klukkan 15:00 skipti í London Stansted í Air Berlin um átta og lendi rétt fyrir 23 "að staðartíma".. vona að lappabatteríið endist mér í báðar vélarnar.
Er að rigga batteríið fyrir videovélina og svona..... vonandi nenni ég að vera duglegur að taka video... ef ég kemst í almennilega nettengingu þá kannski pósta ég eitt stykki videoi..... ef ég nenni.
Er að reyna að fara með sem minnstan farangur... kaupi mér bara drasl sem þvælist bara fyrir í farangrinum eins og föt og fleira :)
Ég talaði við Kharis í dag og hann sagði mér að koma með hlý föt.... WTF!! ég fer þarna út m.a. í þeim tilgangi að komast í betra veður, en ég er greinilega alltaf svona óheppinn í veðrarmálum þegar til þýskalands ég fer.... seinasta sumar þá forðaðist góða veðrið mig þegar ég fór til berlínar [það fór til köben á meðan ] og þegar ég kom aftur til köben þá fór það til berlínar.... jæja ég bít í það súra bara með bros á vör
p.s. tékkiði á Chris Clark plötunni "empty the bones of you" sem er nýkomin út af warp..... stórskemmtileg tónlist fyrir íslenskar vetraraðstæður.
Jibbí jibbí, ég er búin að panta flugið til Berlínar.... fer 29.10 og kem 5.11. Tek flug til london og þar til berlínar.... ég mun reyndar bara hafa 1 klst og 20 mínútur í bakaleiðinni til að tékka mig út og aftur inn, en það verður bara að reddast.
Núna er bara að klára chico rockstar programmið sem ég verð með í club paradies þann 31.okt....
Hef ekki bloggsað í smá tíma núna.... kannski tími til að negla aðeins niður seinustu daga.....
Chico Rockstar spilaði ásamt Ágústu á Iceland Airwaves opnunarkvöldinu 15.10.2003. Einnig voru það TZMP, Helgi Mullet Crew og fleiri stórskemmtileg bönd..... Mér fannst reyndar eins og að chico væri pinku út úr kú á þessu kvöldi, ég hefði viljað vera á aðeins elektrónískara kvöldi, en þetta var fjör engu að síður og chico fékk massa plögg í mogganum 15.10 sem og á mbl.is
Á fimmtudaginn kíkti á John B eða juan b eins og hann hefur verið kallaður vegna salsa fetish hans. Hann mætti það öfga kúl með eighties hárgreiðslu og í Wham bol, og spilaði trancaða drum & bass tónlist.... ég og ásta þreyttumst fljótlega á einsleitri "hörðu" tónlistinni og létum okkur hverfa á kaffihús... Þóra og Birna skemmtu sér stórvel og get ég eignað mér smá hlut í að gera það mögulegt :)
Þegar þarna er komið þá er ég farinn að fá pinku leið á að þurfa að neita boðum um frían bjór, en eins og áður kom fram þá er ég í áfengis og ökustraffi ..... .just in case segja þeir..... er búin að fá nóg.....
When it rains it pours....
Á föstudeginum þá var ákveðið að halda partý fyrir vinnuliðið, svona vegna álags og dót's síðustu vikna.... massa frír bjór og læti..... einmitt þessa vikunna.... urr
Ég lét sjá mig og sagði nei takk, og tók smá dead like me um kvöldið [sem eru btw ennþá fínir þættir]
Um helgina fékk ég að vinna heima sem er skemmtilegt, þó að það sé reyndar smá lonely reyndar.....
Á sunnudaginn kíkti ásta og lærði á meðan ég vann..... fínt að hafa svona smá company á meðan mar vinnur.... Barclay [dj panik] kíkti síðan í heimsókn.... ásamt Kim, sem var snilld.... spjölluðum og drukkum kaffi og síðan elduðum við kjúklingabringur og gúmmelaði.... síðar um kvöldið kom bróðir hennar ástu, stefán snillingur og við horfðum á tripods síðan 1984 eða þrífætlingarnir eins og þeir þekktust á rúv hér í gamla daga...
Eftir helgina tók alvara lífsins við.... fór í heilalínuritið upp á spítala, þar sem klínt var 23 tyggjókúlum á hausinn á mér og hendur, ásamt mælum ... upptakan var í 20 mínútur og var mest allan tíman ég að opna og loka augunum ásamt því að hjúkkan setti strobe ljós upp að augunum á mér og ég þurfti að horfa á það á misjöfnum hraða...... líklegast verið að reyna að sjá hvort að heilin á mér bregðist á einhvern ákveðin hátt við ljósáreiti.
Annars koma engar niðurstöður úr þessu strax.... ég fer í segulómunina í næsta mánuði og eftir það fer mr.taugadoctor yfir málið og gefur mér niðurstöðu.
Fór og kíkti á laugardaginn á Ajax á vídalín... virkilega gaman að sjá þetta goðsagnakennda band koma saman eftir rúm 10 ár til að spila nokkur lög sem þeir voru búnir að hressa upp á, en ég var eitthvað í ekki nógu miklu stuði til að dansa allt til helvítis, fullt fólk verður stundum svo eitthvað ósexý þegar mar er edrú....
Undarlegasti hlutur kom fyrir eftir á. Ég og Ásta kíktum bara heim eftir á og gláptum á videó.... eftir klukkutíma eða svo vakna ég í svolítið köldum svita, og fer á klósettið, og allt í einu man ég ekki eftir neinu og hryn niður fyrri framan klósettið [eftir að ég fór inn]. Ásta kemur og hjálpar mér upp, og ég hryn niður aftur og verð meðvitundarlaus.... loksins eftir þriðja skiptið og einhverja krampa þá næ ég að standa upp og fer upp í rúm og næ að sofna.
Þegar ég vakna kíki ég síðan upp á bráðavaktina og læt líta á mig... allt þar kemur blússandi fínt út, þannig að núna er ég og taugalæknirinn bara að bíða eftir segulómuninni og heilalínuritinu sem ég kemst í eftir tvær vikur eða svo...
Þannig að líklegast er að þetta hafi bara verið one off krampi...... mig langar ekkert að hugsa um hitt strax.... well.. sjáum til.
Mesti bömmerin er núna að ég má ekki keyra næstu misseri.... svona just in case... og no beer or anything stronger for me
Það var bara gaman í gær. Tók dj-laptop í fyrsta skipti á Vídalín í gær og það heppnaðist bara vel. Ég var reyndar búin að útbúa settið eins og ég væri að verma fólkið upp fyrir kvöldið en svo var eitthvað skólapartý löngu byrjað þarna, en ég var með nógu mikið af "stuðaðri" tónlist til að bjarga mér fyrir horn.
Ásta og Birna voru orðnar hressar, en síðan bailaði ásta og ég gerðist bara drinking böddíin hennar birnu, sem var bara "birnukortsrennandiíposaogkaupaendalausadrykki" skemmtilegt....
jæja, annars er mar bara að vinna heima núna [netið mar] og það er búið að plata mig á eitthvað leikrit í kvöld.... það verður eflaust skondið
Jæja, hef svolítið dregið bloggið.... ekki viss af hverju, en það er búið að vera svolítið logn á öllum vígstöðum, en núna finnst mér eins og stormurinn sé búin.. og hann er það. svaf í gegnum hann í morgun :)
Grand Rokk var hress í gær, ég spilaði ásamt Ruxpin, Frank Murder og Þórhalli, og fannst mjög gaman að sjá marga vini mína úr mörgum áttum kíkja á sjóið.
Annars gekk það ágætlega fannst mér... það hefðu mátt vera fleiri kannski, en ég bjóst reyndar alveg við þessu miðað við skítaveðrið. Seinast þegar ég og Ágústa spiluðum þá var feedback problem með mækinn og það fór svolítið í okkur, en það var alveg fínt í gær... hún söng reyndar bara eitt lag, en það var flott. Nú þarf ég bara að gefa því nafn.
geisp... ætti að vera farinn að sofa, en bleh..
það er búið að vera vel mikið að gera í vinnunni upp á síðkastið.... sem er ekkert slæmt í sjálfu sér, því að vinnudagurinn flýgur alveg burt þegar mar er í stuði með.
Ég var að spá, ég er ekki mikið fyrir að elta upp topic þessa dagana, en t.d. á huga þá á ég það til að skrifa einhverjar romsur sem svar við topicum annara... sem er orðið þreytt því að oftar en ekki þá eru þetta bara kjánar. Þannig að ég var að spá í því hvort ég ætti að setja upp svona topic-suggestion-box hérna, og þá getur einhver bara suggestað topici, og ég sé til hvort ég hafi ekki einhverja aðkallandi skoðun á því... hljómar langsótt... en kannski virkar það.. kannski svipað eins og með tónlist... stundum er ekkert nýtt að koma í hausnum á manni, en alltaf gaman að remixa annað dót.
btw, ég kíkti á quantum leap áðan.... er ekki viss, en kannski voru þessir þættir betri í minningunni ?
kallinn bara orðin 26 ára gamall í dag.... yfir kvartaldargamall sko.
SMS-inn og MSN-inn hrúgast inn með afmælissöngvum og látum.. Ég skelli inn einhverjum jólahúmor á eftir... right now er geggjað að gera í vinnunni og engin tími fyrir grín....
að mar skuli vinna á ammælisdeginum.... issss
smá forskot tekið á ammælið og fagnað næstkomandi laugardag....... 4 dayz
frekar rólegt kvöld..... ég er ekki ennþá búin að koma mér í það að fara aftur að semja músík..... en mar sér til eftir smá hvíld
Ég geri það ekki oft að setjast niður og stúta kvöldi með S-einum, en í kvöld var það LAO, criminal intent og mr.leno.
Ég hef alveg haft gaman að Vincent D'Onofrio, sérstaklega í ræmunni þarna með J-lo sem ég man ekki alveg hvað heitir í augnablikinu og nenni ekki að puncha inn imdb.com...... og þó, ok tékkaði, auðvitað var það the cell, aftur á móti man ég ekki eftir í honum full metal jacket, sem er massa mynd.... segir mér að ég þurfi að horfa á hana aftur við tækifæri.
En eins og ég var að segja, ég hef haft gaman að þessum leikara, en það er eitthvað sem er aðeins að stríða mér við persónuna sem hann leikur í law and order .... það eru einhverjir taktar sem hann leggur aðeins of mikla áherslu á þannig að út í örlítin ofleik fer.... en hey, quality scripted television is hard to come by og þetta er sæmilegt.
Jay Leno er alveg orðið þreytt program..... en hálfáhorfanlegt.... hann má eiga það að sumir brandarana í monologinu eru ágætir, en mig langar frekar í conan o'brien aftur, en það er líklegast vegna þess að hann kom nálægt simpsons þáttunum og ég er simpsons nött.
Langaði reyndar alveg shitloads út að gera eitthvað skemmtilegt..... en ég er soldið hræddur við rigninguna eins og hún leit út í kvöld, en eitt er þó víst..... út verður farið þótt hún verði svona evil á morgun.....
Kíkti á vidó á föstudaginn með ástu, reyndum að horfa á johnny english, en gáfumst upp eftir 20 mínútur..... j.english er slöpp ræma og frekar ófyndin. Annars kíktum við á snilldar heimildarmynd frá bbc, í umsjón snillingsins Louis Theroux, endilega tékkið á þessari seríu, Wierd Weekends.
Síðan kíktum við á Ringu 0 Birthday, sem rekur atburði í kringum unglingsár Sadako og leiðir alveg að því þegar hún lendir í brunninum. Mjög góð mynd, svona drama blandað við hroll.
Svo hélt ég teiti í gær, laugardagskvöldið, fyrir liðið úr vinnunni.

Loftur hressi, tannlæknirinn minn tók mig í píningu í morgun, hreinsaði einhvern svakalegann tannstein og píndi mig sæmilega mikið með bornum. Mar er auðvitað ekki kelling og fleygir ekki peningunum út um gluggann og tekur þetta ódeyft. HETJAN ég mar.
Gaylordý, já, það er kominn gay pride helgi og það er gaman, en vegna ómeðvitaðrar hómófóbíu minnar, þá lét ég plata mig til að vinna um helgina.
Ég kíkti þó aðeins út í gær, fór til Unnars Hugalings í smá sull, þar sem skeggrætt var um allt frá íslensks viðskiptalífs til nýs uppgvötað afbrygði Yoga, svokallað vinnu-reykingarpásu-yoga.
Eftir það lét ég sjá mig niðrá VM, þar sem Alli, Barclay+Kim, Oddur "Símon", Villi og fleiri hressir snáðar og snúðlur kældu sig í næturhitanum [spakt mar]
VM [vegamót] er athyglisverður staður, og ætti hann vel heima í heimildarmynd David Attenborough um tælingartilburði mannfólks með aðstoð sólríkrar R+B tónlistar. Vængstýfingar og stélhristingarnar eru svo miklar að ferómónin í loftinu yfirtekur reykingarstybbuna.
Jæja, þá er ég búin að fá útrás fyrir smart-assið í mér
Jæja þá er mar búin að ná sér eftir smá óhressleika af pestartagi...... og kominn í vinnunna og farinn að rífa kjaft..... so no time for bloggin
Alltaf gaman að eiga súperceleb foreldra. Þau eru á kafi í húsbíladellunni, og þetta er viðtal við þau í fréttablaðinu, 05/08/2003 bls 38
Þá hefur pestin tekið mig tangarhaldi.... það er búið að vera svo þungt loft upp í vinnu og slöpp loftræsting, að ég var bara einn dag að smitast af pest-ardrasli.
Lét mig hafa það að fara að vinna fyrir hádegi, en eftir nettan svima og kaldan svita ákvað ég að best væri að taka því rólega heima og kíkja á The Planets sjónvarpsseríuna frá bbc
Gamall félagi, Barclay [aka dj panik], lenti í gær á leifstöð ásamt kærustu sinni, Kim. Ég var búin að bjóðast til að sækja hann, en það endaði ekki vel. Ég kem upp á leifstöð bíð eftir þeim, og síðan koma þau, við hendumst í bílinn, keyrum 15 metra, og síðan gefst hann upp. Eftir 20-30 mínútna tilraun til að rústa þessu af stað, þá gefumst við upp á því og tökum leigubílinn, sem kostaði 10 þ.kr, hvorki meira né minna.
Síðan var bara opnað absalútið, blandað, og drukkið, og kíkt niðrá prik, þar sem var ágætis stemning, og enn og aftur þá var crazy in love ofspilað, en mar leiðir það bara hjá sér.
fyrst að þessi litli hausverkur sem ég var með er horfinn þá get ég talað um kvöldið í gær....
alveg fínt fínt kvöld, kíkti með ástu og þóru í hakkí sakk, og staðfesti það að ég er ónýtur í því, gaman að prófa samt.... síðan komu hressir rónar, sem fóru eitthvað í taugarnar á stelpunum, kannski ekkert skrítið... fyrst þeir voru meira leiðinlegir en hressir á endanum. Eftir þetta þá kíktum við til ólafar [jamm, ég var næstum því á leiðinni í stelpupartý, en kærasti ólafar var á staðnum þannig að hjúkk]
chilluðum þar, súpuðum bjór, hlustuðum á orbital, chemical brothers o.fl. ásta og maría tóku make up session og var það documentað fyrir og eftir

fyrir makeup

eftir makeup
eftir að hafa kvalið ólöfu og árna með því að reykja fyrir framan þau [eru á 5 og 12 degi reykingabindindis] þá fórum við niðrí miðbæ.... og ráfuðum á milli skemmtistaða...
p.s. ég heyrði crazy love með beyoncy eða hvernig sem það er skrifað þarna destiny's child gellunni, afkáralega oft... ég myndi segja að þetta sé vinsælasta lag næturlífsins...
já, það er ekki tekið út með sældinni að vera orðin einn..... erfitt að lýsa því, en ég held að margir geti eflaust kannast við þessa tilfinningu sem mar fær eftir að hafa verið með einhverjum í langan tíma og svo allt í einu ekki.
Var að horfa á video í gær..... og það kom móment í b5 sem talaði svolítið mikið til mín... karakter sem talaði um hvað mar á það til að einblína á hvað maður er ekki, í stað hvað maður er.... og þess vegna á maður það til að missa af augnablikunum...
ég er ekki alveg viss af hverju, en ég hef amk daginn í dag til að komast að því... allt annað má bíða
eyddi kvöldinu með ollie d, horfðum á 10 þætti af babylon, sem er rúmlega átta klukkustunda session. ég er algerlega búin að snúa við sólarhringnum hjá mér, sem þýðir það að ég fer að sofa 5-7 leytið og vakna 1-3.
er að klára ofuruppfærslu, yet again, á blogginu hjá mér, og er núna búin að fara yfir allar gamlar færslur til að bæta við "keywords" sem gerir það að verkum að þegar gestir smella á færslu þá koma linkar á aðrar færslur sem ég hef bloggað um svipað efni
já, maður er alveg steinhissa eftir svona æðislega viku.. ekki átti ég von á svona svakalegu veðri, en ég er sko að nota það eins vel og ég get... á meðan ég get.. er búin að hjóla þónokkuð og hanga í sólbaði..... vona bara að þetta haldist svona gott.. því miður er mbl.is ekki sammála
annars er það ekki mikið fjör á mér í kvöld, ég og óli erum að taka babylon 5 session.... erum búnir að klára fyrsta season og erum að klára annað... það er farið að hitna í kolunum :)
var að frétta það að gamall félagi, barclay - dj panik, er að koma í heimsókn í ágúst
stundum líður mér eins og tilveran sé endalaus leit að fullkomnun... beinni línu, hreinu rými eða einhverju sem gengur upp án viðhalds....
fyrir nokkrum árum síðan komst ég að því að það fullkomnun er huglægt ástand, sem er mjög erfitt að ná... og ef mar finnur hana, þá byrjar hún að veðrast eftir smá stund.... og það er ekki endilega fullkomuninn sem skiptir máli, heldur það að vera alltaf að leita að henni....
varð bara að koma þessu frá mér....
kíkti á central með ernie og bímster, ekki kjaftur þar eins og vanalega. hversu lengi getur eiginlega staður gengið með svona lítla veltu?.... hmm
ég og ásta kíktum á lcf krú sem var busy að spreyja vegg á stígnum milli kaffi vín og landsbankans á laugaveginum... chillaði það í svona 2 tíma, að kinka kollinum við gott hiphop, slakandi á í tröppunum.... ekkert gin og djús samt.
síðan var það bara mini pöbba röllt með mr.murder




nice nice, æðislegt veður í gær, toggi/maría/jónas/steinunn/styrmir/gústi kíktu í heimsókn og það var tekið garð-grill.... helvíti nett.. eftir á þá var videokvöld... ég og ásta og toggi reyndum að horfa á irreversible, en urðum frá að hverfa vegna þess hversu þung og ofbeldisfull hún er.... eða meira bara svona myrk.... en ég reyni síðar þegar ég er í svona þunglyndisstemningu
já loksins er megasárið farið að loka sér þannig að ég get farið að .... nota hana aftur. Lét taka saumana úr í gær, og er frekar feginn eftir það. Saumarnir báru svolitla ábyrgð á sársaukanum síðar meir...... hérna kemur smá myndasería.... ég vara þá viðkvæmu við.....








já þetta er nýja kaffi græjan sem stendur í ströngu þessa daga..... veit ekki hvort ég get nokkrun tíman sætt mig við vinnukaffið aftur...
já, ég er í sumarfríi þessa dagana, sem byrjaði frekar brösulega með skurði á hendinni.
er svona að vonast eftir góðu veðri svo ég eyði því ekki öllu inni í tölvunni,... ólíkt mörgum sem ég þekki þá er engin utanlandsferð plönuð, í mesta lagi smá ferðalag út á land og svoleis.... síðan ætla ég líka að búa til nokkur lög á nýju vélina... ásamt nýja hljóðkortinu......
annars leiddist mér svona soldið í vinnunni og eyddi smá tíma í að láta xp-ið þykjast vera makka .....
djöfulsins drasl, lentí í smá slysi síðastliðin föstudag og þarf að gera svona krapp þegar ég fer í sturtu..... feel like a criple
slæmur draumur í nótt.... og dreymdi hann nokkrum sinnum.... ég var á bát ásamt fleirum... frekar solid bátur, ekkert titanic vesen.. en allaveganna.... í einum draumnum þávorum við nálægt einhverri kemikal verksmiðju, sem að lenti í einhverju slysi, og verksmiðjan og allt í krinum breyttist í svona eldkúlu... við náttúrulega sáum þetta.. og horfðum á þegar að eldtungurnar teygðu sig að okkur.... þegar þær náðu til okkar þá skelltist á okkur líka höggbylgja þannig að amk ég og fleiri fukum úr bátnum, en um leið og bið fukum þá brunnum við líka..... og þarna var ég farinn að átta mig að ég var að dreyma, en fann samt brunann á mér... á fótum , löppum o.s.frv... ótrúlega óþægileg tilfinning.
Næsti draumur gekk út á það að sólin var að deyja, en rétt áður þá yrðum við steikt lifandi, og enn og aftur var ég á þessum báti... aftur á móti lenti ég aldrei í dæminu þar.... heldur var bara alltaf að bíða eftir því.... og áður en það gerðist þá kom fárviðri sem feykti bátnum upp og flaug hann í loftinu meðfram öðrum bátum sem höfðu sokkið en voru svona rétt undir sjávarmáli.... þannig að mar sá líkin líka skjannahvít í framan..... og þá datt mér í hug að vakna..
engin smá helvítis vinna að þurfa að dreyma þetta....er einhver draumráðningargaur ?
ég er mjög upptekin þessa daganna þannig að ég vona að mér verði fyrirgefin svona vika af þögn, þrátt fyrir kröftugar yfirlýsingar síðastliðna daga
úff hvað er mikið að gera í vinnunni, einu sinni voru helgarnar svona rólegri, en nú er þetta endalaust puð, sem þýðir það að mar að taka helgunum rólegra um helgarnar til að vera í working condition í vinnunni.....
úff hvað það er orðið þreytt að skemmta sér í bænum..... eða meira svona alltaf það sama.... vegamótprikiðkaffibarinnsirkus..... einu staðirnir þar sem að er ekki vonlaust hyski...... shalimar kemur reyndar sterkur inn..... ef þið vitið um einhverja aðra uppskrift... einhverja staði sem ég á eftir að uppgvöta, endilega skjótið því á mig
hehe, og hún fjærlægði kommentið strax út.... en ég ætla ekki að taka það út hjá mér... múhahahaha.... nema fyrir eina kippu af bjór
kannski er ég bara einhver kveif, en mér finnst bara plain rangt að kíkja á bloggið hjá litlu systur minni og lesa eftirfarandi setningu
"nægur tími til að stunda villt kynlíf með Millilæratryllinum :) ... það er bara ekki gaman þegar maður er með æluna í hálsinum :("
http://bengsy.blogspot.com
úffff, ég lenti í slysi í nótt upp í rúmi, ok kannski svolítið dramatískt að kalla það slys. Þegar ég vakna þá er ég með þennan ótrúlega verk í vinstri litla fingur, get varla hreyft hann fyrir sársauka og kemst að þeirri niðurstöðu að ég hlýt að hafa velt mér ofan á hendina á mér í nótt skrumpað hana og beyglað til helvítis.
ég fékk smá first aid og fékk puttann bundinn við baugfingur, og ég er orðin að fatlafóli á lyklaborðið. Bara svo að þið fáið almennilega hugmynd um það hversu fatlaður ég er þá skal ég skrifa næstu málsgrein án þess að leiðrétta hana.
ég var´wð spáw hvort ða þetta hafi gerst vegna þes sad eg fekk mér nokkra bj´roa fyrr um kvöldið en komst að þeirri niðurstöðu að það væri fjarstæðukennt
jæja þettta er ekki svo slæmt en ég er orðin svo vanur að vélrita nærri flawlessly að þetta er pirrandi
Skrítið, ætli það sé hægt að hreyfa sig of mikið?
Ég tók smá þrek session í morgun, hlaup og svoleis, og var eitthvað óvenjuhlaðinn upp í vinnunni, semsagt hlaðinn upp af einhverjum óútskýranlegum pirringi, eins og að hormónarnir væru í klessu, .... nei ég er ekki á einhverjum fríkí sterum eða vitleysu.
Þetta er einhvern vegin eins og manni langi til að kýla næsta mann að ástæðulausu... ok kannski ekki svo slæmt en svona pirringur bara... furðulegt.
úff, djöfulli dreymdi mig súran draum,
það var eitthvað eðalhyskisglamúr partý í reykjavík, með elton john og tilheyrandi liði, og ég var í einhverju "liði" sem hafði fengið það verkefni að massa til eftirpartýið fyrir hyskið.
og það var svo súrt.
fékk í hendurnar kort yfir risastórt "underground structure" a la james bond, og nokkrar millur líka til framkvæmda, og átti semsagt að breyta hálfgröfnum risastórum kjallara í eitthvað partý-joint, pleisið hefði náð undir 2-3 fótboltavelli, það var svo stórt
og einhvernvegin gekk draumurinn út á það að við vorum að reyna að skipuleggja hversu langt við ættum að grafa niður, og síðan í einhverjum könnunnarleiðangrum þá föttuðum við náttúrulega það að það var hollt undir þessu öllu saman, og þar var náttúrulega helvíti sjálft....... ég hefði bara átt að halda partýið þar, þá hefði mar losnað við no good pop music celebrities á einu bretti
en þá vaknaði ég
jæja, þá er kominn mánuður síðan að ég póstaði einhverju hressu hérna á þetta hyskisblogg, og nú er mál að linni, eða öfugt semsagt.
Ég lýsi því hér með yfir að ég ætla að rugla einu sinni á dag [til að byrja með köllum við það nóg...] og ef einhver msn nördanna minni lesa þetta þá mega þeir minna mig á að skrifa hérna einu sinni á dag.... það er ekki að ég ætli að gleyma því..... æi ef þú ert ekki jafn gleyminn og ég þá skilurðu ekkihvað ég meina.
ég ennþá vakandi og frúin fer að sofa fyrir tveim tímum síðan..... vandamálið er það að ég er allavikunna að vinna frá 13-21, og þegar ég kem heim þá á ég alveg inni 5 tíma af vöku og hressleika, en frúin þarf að vakna kl 6-7 um morguninn... hvað eiga negrar að gera ?
ég hef reyndar farið að sofa um miðnætti í þessari viku, en þá vakna ég bara kl 08:30-09:00 morguninn eftir, og ... hvað á mar að gera, skrapp reyndar í þrekarann á þriðjudeginum... sem er ekki slæmt að vera hreyfður [moved] og fínn í vinnunni, sérstaklega miðað við að ég set fyrir framan tölvuskjá 8+ klst á dag...
tada dagsins:
verðstiginn í græjum
1.japan
2.usa
3.uk
4.evrópa
5.ísland
semsagt fyrsta sæti ódýrast og síðan niður.... af hverju erum við ekki einu sinni í evrópu ?? þetta er reyndar ekkert lögmál heldur bara markaðssvæði, og þetta snýst bara um það hversu mikið fólk er tilbúið að borga fyrir vörurnar... þannig að þetta er okkur sjálfum að kenna, hættið að kaupa svona dýrar vörur eins og ekkert sé, efnaða hyskið ykkar, því að ég hef ekkert efni á þessu .....
og ekki reyna að segja að þetta sé launatengt á milli landana, því að bandaríkjamenn hafa mest á milli handanna, en samt eru græjur ódýrastar þar... og japan sko, fer eftir því hvar viðkomandi græja er framleidd og sett saman
æm a sökker for new technology
þvílíkur ubernördaskapur.....
fór í þorrablót í gær til familíunnar.. allt í góðu með það.. gaman að borða flatkökur, sviðasultu, hangiket og fleira þjóðlegt... Eins og við mátti búast snerist þetta svo auðvitað upp í húsmæðrastjórnmála umræður sem hægt er að hlæja að.
En aðal nördaskapurinn kom síðan síðar um kvöldið þegar pimpmasterinn skundaði til félagana, með nokkra bjóra og kvöldinu eytt í sull og að stilla til eldveggi og beina.... og horfa á simpsons inn á milli, og þá spyr ég... er ég orðin vonlaus nörd ?
Bið og aftur biiiiðððð
djöfullinn sjálfur, ég er að vera geðveikur..... ég er ennþá að bíða eftir niðurstöðunum úr prófinu sem áttu að vera komnar í síðustu viku og þarf líklega að bíða framyfir áramót....
OG núna kemst ég að því að ég þarf að bíða fram yfir áramót til að fá úr lokaverkefninu........ god damn it ....... og meira í bið..... segi kannski síðar frá því
hverjum getur farið að hlakka til jólanna, þegar það er svona margt annað mikilvægara sem bíður
Já verð nú bara að segja að ég er stoltur af hefðarfrúnni.... var að fá einkunnir úr prófunum sínum..... ein sjöa, nokkrar áttur og ein tía... ekki óglæsilegt það... til hamingju elskan
hurðin strikes again
núna gekk ég beint á eftir næsta manni, og hún stoppaði EKKI á venjulega staðnum heldur á nítíu gráðunum... semsagt í stop stöðu.... og hélt áfram eftir hálfa sekúndu....
btw, þetta blogg verður notað þegar ég kæri atvinnurekandann fyrir sálrænan skaða ...... og jafnvel líkamlegan skaða ef þetta gerist einhvern tíman þegar ég held óheppilega á kaffibolla...
gaman gaman, bjór, bolla, kókómjólk og pylsa í gær....
ariíögri, vídalín og vegamót tekin í taðgatið í gær af da rockstah, og núna ermar bara eiturhress í vinnunni..... leiðinlegt að vera þunnur, en ég er það ekki, þannig að það er gaman....
svona skemmtilega gleraður bara...... heyri reyndar að sumir sem hringja eru það líka..... einhvernveginn gerir það stemninguna afslappaðri
ég er svo dannaður...... af því að ég er að lesa...
ég er að lesa íslenska þýðingu síðan 1952 af James Bond sögu eftir ian flemming sem heitir láttu aðra deyja... eða live and let die á frummálinu. Ágætis saga og mjög skondið að sjá tíðarandann þá koma fram í bókinni eða þýðingunni. T.d. er talað um svart fólk sem negra, og ekkert að því, en það er talað um þá líkt og fólk af annari plánetu væri að ræða.. nær hæstum hæðum þegar talað er um svarta apa.... jú og svo reykir James Bond svo mikið af vindlingum að maður fær í lungun.
btw, ég veit að hurðarsagan er næstumþví óskiljanleg.... you have to be there i suppose
Jæja, hurðin er búin að klikka á mér tvisvarsinnum í vikunni.... furðulegt.... sérstaklega miðað við að ég er farinn að læra svolítið á dyntina í henni, og í amk annaðskiptið gerði ég ekkert vitlaust
þetta er allt um tímasetningu, miðað við snúning hurðarinnar...... og ég tel mig vera búin að læra ágætlega á það.... t.d. ef ég ætla að ganga á eftir næsta manni [í næsta hólf ] þá verð ég að auðkenna mig [með korti] áður en hurðin fer undir 30 gráður, af þessum nítíu gráðum semsagt... og ef hurðin fer undir 30 gráður og ég auðkenni mig, og geng inn þá á hún eftir að stoppa eftir svona 60 gráður... sem þýðir að ég get gengið aftur út og reynt aftur.....
núna komst ég að því að ef að hurðin er farinn 180 gráður [semsagt heilan entrance snúning] þá verð ég að gefa henni örfáar sekúndur áður en ég læt skynjarann nema mig og byrja að snúa hurðinni....
og án nokkurs tilefnis áðan þá stoppaði hún í ´hálfa sekúndu, pípaði einu sinni og hélt síðan áfram.... þá meina ég að hún stoppaði á stop ás sínum og ég fastur inn í einu hólfinu.... sem betur fer var ég ekki með kaffibolla....
vá, held að þið ættuð bara að vera feginn að ég get ekki skrifað mikið um vinnuna mína hérna..... það væri ekki fallegt.....

mynd eftir caroling@wholeo.net
hurðin í vinnunni minni.....
það er eitthvað trix í gangi...... hurðin í anddyrinnu í vinnunni er svona klassískt snúningshurð [fjórir glerplattar, fjögur hólf, snýst í eina átt] og fær mar aðgang með aðgangskorti. Þegar mar fer í eitt hólfið þá snýst hún og maður labbar með og hún snýst 180 gráður. Ef að næsti maður fer í hólfið á eftir manni án þess að smella inn aðgangskorti sínu þá stoppast hurðin á miðri ferð og gefur frá sér örlítið píp og er eftir smá smuga fyrir viðkomandi að fara til baka út.
hvort sem það er af mannavöldum eður ei veit ég ekki, en þessi hurð er skaðræðisvaldur og hefur greinilega eitthvað á móti mér....... ég ætla að documenta hérna á pimpmaster þessi skipti sem að hún veldur mér skaða....
fyrir viku síðan þá var ég á leiðinni inn með eðlilegum hætti og hún stoppaði á miðri leið og fór 30 gráður til baka með þeim afleiðingum að glerið skelltist framan í mig.....
núna áðan var ég á útleið og hún gerði það aftur [þegar mar fer út þá þarf mar bara að smella á takka, semsagt ekki sýna aðgangskort]
í þetta skipti var ég með kaffibolla og slatti heltist yfir hendi mína og jakka....
to be continued......
vá..... lítið að gera í vinnunni, spurning hvort mar kíki í dbt partý í kvöld...... ... samt skondið að mér skuli vera að detta það í hug að vera ekki í vernduðu umhverfi eftir læti seinustu helgi...... föstudagurinn var stórkostlegur..... vinnusötr og skemmtileg heit höfðust upp úr sex og stigmagnaðist svo um miðnætti þegar á vm var komið og gripið tequila...... það var downhill from there og endaði í því að ég vaknaði heima klukkan 19:30 á laugardagskvöldið með krakkhóru hausverk........ en ég lofa að vera stilltur
Ég er alveg að iða svo mikið í skinninu að skinnið er farið að losna af mér.
ég er, eins og sumir kunna að vita að taka MCSE , sem þýðir að eftir að ég klára prófin tengd henni þá verð ég microsoft hóra [ég kann samt að hugsa sjálfstætt ólíkt mörgum label-hórum.
Ég er búin að klára 5 microsoft próf og allt gott og blessað með það, en ég tók eitt beta próf 16.október, en hef ekki ennþá fengið að vita hvort ég náði því eður ei......og það er að gera mig vitlausan. Ef ég næ því þá á ég bara eitt próf eftir, en ef ég næ því ekki þá á ég tvö eftir........ kannski þetta geti stytt mér stundir
surprise surprise, ég þarf ekki að vakna í vinnunna, mæti klukkan eitt, en vakna af sjálfur upp úr þurru klukkan hálf níu.... getting old me bastard
hefðarfrúin kominn í massa átfitt og ætlar á grímuball, ég átti mér einskins ills von og ætlaði að vera að nördast í kvöld en var þá ekki elskan búin að kaupa bjór handa mér..... mmmmm þú getur nánast "lesið" bragðið af stella artois
merkilegt, eftir að hafa dreymt fáránleg mikið af draumum um framtíðarhernað sem leit samt út eins og pre WWII hernaður, nema bara að það var land gegn landi, en öll þjóðarbrot voru löngu blönduð, þannig að mar gat búist við því að vera að berjast við hliðina á mönnum með þýskan, mexíkanskan og sænskan hreim [o.fl]......... VÁ löng setning. Eftir að hafa dreymt þennan súra draum þá vaknaði ég og hugsaði um hvort það væri ekki sniðugt að skrifa fjöldan allan af litlum bútum úr draumum með breytuheitum í staðinn fyrir nöfn á fólki í draumana, x1. Og síðan er hægt að gerast áskrifandi af þjónustuni, og skrifa inn eins og 10-20 nöfn einhverra sem mar þekkir og einu sinni á dag, já morgnana semsagt þá fær mar afhent í e-mail, draum dagsins.....
og þetta myndi semsagt gagnast fólki sem nennir ekki að skrifa niður sína eigin drauma, og gleymir þeim alltaf....
súr pæling
gaman að sjá hvað mar skrifar undarlega á morgnana
Klukkan átta, skondið að vakna svona snemma, það er einhvern vegin allt annað atmosphere í gangi núna. Alger þögn fyrir utan viftuhljóðið í tölvunni minni. Át smá Trix í mjólk og las fyrirsagnirnar mínar
Meðal annars um "óhróður og hótanir á netinu". Morgunblaðið er svo einfalt og grunnhyggið og segir hvað sem er fyrir shock value-ið. Reyndar ekki í jafn miklu mæli en DV en gildir einu. Auðvitað hrella krakkar hvorn annan og hafa alltaf gert, en fjölmiðlar virðast stundum vera með þá áráttun að reyna að sanna húsmæðurnar í vesturbænum um að satan stýri internetinu og því beri að loka.
Þeir eru bara fúlir vegna þess að ég er að lesa mínar fyrirsagnir, en ekki blaðra í sneplinum þeirra og borga þeim bleðla per mánuð.
Vinnupartý í gær, og fór fljótlega út í of drukkna vitleysu, beilaði yfir í partý þar sem að egóinu var vel sinnt með því að taka digital myndir af gestunum og varpa þeim upp á vegg.
Spurning að mar reyni að láta verða eitthvað úr deginum, frúin fór í verslunnarleiðangur með systur sinni, skil ekki hvernig það er hægt að gera svoleiðis á sunnudögum...
Vá , ég er búin að vera nokkuð þögull upp á síðkastið.....
er að læra undir próf annars sem verður á morgun... og tók mér smá breik til að configga aðeins tölvuna mína, skellti opera upp og er massa ánægður með hann, mjög fljótur og þægilegur vafrari
einnig, losaði ég alveg desktoppið mitt, og færði afganginn síðan á annað drif.... þannig að ekkert nema google / bloggglugginn og rss gaurinn minn á skjáborðinu rss = http://addi.breakbeat.is/rss
skelli kannski mynd af skjáborðinu mínu einhverntíman þegar ég er í of miklu stuði
ömurlegur dagur, vinnan mín má éta hest....... amk í dag
ég hef nú ekki krotað neitt hérna almennilegt í svolítin tíma, ... hmm hef ekkert að segja....
no news is good news i suppose
funky skítur..... sleppti öllu djammi í gær og er búin að vera þvílíkt próduktívur í dag, takatil eins og skrattinn og nú er pleisið bara ekki slæmt........
Jæja, þá er ég kominn í góða stemningu enda byrjaði daginn á æðislegu löngu baði.... mmmm
SorRy með bloggleysið, en ég hef bara verið upptekinn við að gera standa í innflutningi á þýsku vinnuafli - Remoteworker og Apparat verða að troða upp laugardagskvöldið 24.ágúst
ammæli eftir 6 daga, ég er svo æðislega glaður you know, ho.... duh.. svakalegt alveg.... kvartaldargamall djöfull
Klassi að vera vaknaður ágætlega fyrir vinnunna [1 klst] og án þess að vera neitt eftir mig eftir daginn á undan.
Getur einhver suggestað áhugamál eða tölvuleik sem ég get orðið húkkaður að........ helst að vera svona laugardagskvölds áhugamál eða leikur, sendið póst með tillögum á breakb@centrum.is
klukkan að verða þrjú og ég bara að tölvunördast, eftir helgi eftir helgi eftir helgi af sukki og svínaríi, þá þurfti ég allt í einu að ákveða að vera stilltur á menningarnótt.
Breytir engu ég kann hvort eð er ekkert vel við miðbæinn þegar hann er stappaður.
remoteworker / apparat eftir 7 daga
Horfði áðan á Never say never again, 007 myndina, sem var sýndist mér ekki framleidd af brocolli og co, sem sást mjög greinilega. Þessi var miklu kynfengnari, samtölin voru oft jafn meðvituð og í austin powers o.fl
Bond: do you also serve men here
clerk [woman]: we serve men here, some more then others.
En gaman að sjá seinustu mynd connery. Hann var ennþá með smá takta árið 1983 .[þ.e. sem bond]
Ég hef ekkert heyrt neitt meira frá geðsjúklinginum á leigubílnum, sem betur fer, og geri ráð fyrir því að hann hafi verið á sterkum lyfjum og sé kominn niður
Undarlegt, ég vakna og er alveg hress, fékk mér heldur ekkert ótæpilega mikið að drekka í gær, EN ég er þó með stingandi hausverk.
Ekki svona þynnildis hausverk heldur svona skemmtilega stingandi hausverk. Stórfurðulegt.....
Vinna klukkan 12 og allt það... lítið að gera eins og vill verða á helgarvöktunum..... I love my desktop
Vinnan mín er súr
Já gaman í vinnunni minni þegar maður fær svona póst frá starfsfélögunum:
Subject: fullur kall að hringja inn
Message:síminn hjá honum er 5xx-xxxx og hann hefur greinilega ekkert að gera og vill bara láta okkur lesa póstinn sinn fyrir sig........
Kveðja
xxxxxx
Stór skál af seríós.
Hvernig stendur á því að það er miklu auðveldara að taka letikast, heldur en heilsukast?
Ég er búin að vera á seinni vöktum alla vikuna sem þýðir það að ég vakna klukkan 10-11:30, fer aðeins í tölluna, ég morgunmat, reyki og drekk kaffi. Konan náttúrulega farinn í vinnunna klukkan 7 um morguninn [og hatar mig líklega fyrir að fá að sofa lengur].
Djöfulsins geðsjúklingi lentum við í ígær. Þannig er mál með vexti að við tókum leigubíl heim í um seinustu helgi og skömmu síðar uppgvötaðist það að hefðarfrúin hafði týnt veskinu sínu. Reddaðu hún sér númer leigubílstjórans og í gær reyndi hún að hringja í hann en svaraði engin. Á meðan þetta gerðist var ég í vinnunni. Skömmu síðar msn-ar frúin mig og segir að það sé einhver sem hringi og segi ekki neitt... og neiti að leggja á [semsagt heldur línunni].
Ég segi henni að leggja símann á og fljótlega losnar línan, þá læt ég hana stimpla áframsendingu á númerinu yfir á gsm símann minn.
Nokkrar mínútur líða og fljótlega hringir síminn minn, ég svara kynni mig, viðkomandi spyr frekjulega hvort ég búi á þessu heimilisfangi bla bla, ég svara játandi og síðan segist hann krefjast útskýringar á því að hringt hafi verið úr þessu númeri [þá heimasímanum mínum] í númerið hans. Ég vissi náttúrulega ekkert hver viðkomandi var og sagði honum að það hefði kannski geta verið einhver í heimsókn hjá mér [vissi ekkert heldur hvenær einhver hefði hringt í hann]. Þá verður hann ennþá frekari og móðursjúkari og endurtekur í sífellu "ég vill fá útskýringu...ég vill fá útskýringu....ég vill fá útskýringu....ég vill fá úskýringu".
Ég vitaskuld skellti á viðkomandi, gat varla ímyndað mér hversu geðveikur eða á hvaða lyfjum viðkomandi var á. Eftir þessi gaur reynir nokkrum sinnum að hringja í mig fyrst úr sínu númeri og síðan úr númeri með númeraleynd, þá hringi ég á frúnna við komumst að því að geðsjúklingurinn er leigubílstjórinn. Hún hringir í hann, spyr um veskið, og spyr síðan hvort hann hafi verið að hringja, hann neitar því [þetta er sami gaurinn, móðursýkin heyrist langar leiðir "hver ert þú, hvernig þekki ég þig"].
Mikið sukkað í gær, fór í sluggathuggaz teiti, smakkaði vafasama bollu a la junglizt og hlustaði á mc nonna gera sitt besta til þess að pirra plötusnúðinn með 101 glamri.... fyndið
Beilaði og datt í partý upp í árbæ, þar sem vinnufélagi minn var með einhverju krúi. Landið mjög lítið, maður getur ekki farið í partý án þess að eiga það á "hættu" að hitta einhvern óvænt sem maður þekkir. Gaman að hitta gamla kunningja og ágætis skemmtun. Sérstaklega þegar þeir eru með mission að fylla mann :)
skrapp niðrá vítalín og hlustaði á dj gullfoss og geysi og fór síðan á 22 og tjúttaði mæ ass off. Hitti hr.nexus sem var skemmtilega ölvaður. Hrundi niður í rúmið um 6-7 leytið og vaknaði klukkan 11 með hefðarfrúnna mér við hlið sem skutlaði mér síðan vafasömum í vinnunna.
já eftir nokkra hringi í colin mcrae 2 þá er ég sannfærður um að það mun þurfa mikla æfingu til að komast á það level sem ég var á fyrir ári síðan.... en ég mun reyna.
Spilaði intermmediate, sem er medium erfiðleiki og ekki gekk það alltof vel..... náði að vera ekki seinastur í 2-3 skipti..... Ég gæti náttúrulega alltaf kennt aðstæðum mínum um allt saman..... note 2 self, kaupa alvöru bílastól í einhverri varahlutaversluninni og bolta hann niður , og festa stýrið og pedalana fyrir framan......
Hefðarfrúin á megavakt dauuððaaaannssss 16 klst, en r að bíða eftir því að vera ferjaður í smá gleðskap hjá mc nokkrum nonna... þá má segja að ég sé að vera ótroðnar slóðir hvað varðar hann og hans krú en samt ekki.... sjáum til.... já gleymdi að minnast á það BOLLA BOLLA BOLLA
"dont you hate it, when you can download at a certain speed, but the server your getting your shit from, is only pumping to you at one third of that speed..... isnt that crap?.... am i right folks"
Já, athyglisvert, nú er verslunnarmannahelgin og þorri æsku landsins er að smyrja liðamótinmeð áfengum drykkjum, leita sér uppi afsökun til handalögmála, og leitandi að rekkjunautum.
Á meðan er ég í rólegheitum að vinna, ákvað að reyna sleppa einhverri slefandi vitleysu og greip mér þessvegna í vaktir á laugardegi, sunnudegi og mánudegi, en til upplýsingar er ég að vinna í tech supporti hjá ónefndri internet þjónustu í reykjavík. Frekar lítið að gera og þar af leiðandi nota ég tímann til þess að skoða eitthvað funky á vefnum.
Ég varð skýjum ofar er ég sá að colin mcrae 3 væri að koma út en datt snögglega niður þegar að ég sá að hann væri að koma út á xbox og ps2. Sveiattan segi ég og vei codemasters, og vona ég að þeir bæti úr þessu sem fyrst. Þangað til mun ég skemmta mér konunglega í CM2 með force stýrið á pc tölvu minni
Úff ég hata að koma of seint í vinnunna. Vekjarinn var ekki stilltur í gær, og aðallega þar sem að ég er farinn að treysta á frúnna í þeim efnum, en framvegis ætla ég frekar að vera safe then sorrý mofó.
Kíkti áðan á Animusic. Helvíti flott animation, helvíti hrikaleg músík. Getur sótt demó hér.
Verð að fara hætta þessari kaffidrykkju. Er alltof hægðalosandi.
Eftir á að hyggja.
Hver veit nema að ég haldi áfram að blogga þótt að ég sé ekki í útlandinu.
Á ég að blogga meira, let me know then
Ég skellti inn nokkrum linkum [linkaðu nokkur orð hér að neðan] með google [vogun vinnur vogun tapar "tækninni"] og sumir linkarnir gætu orðið svolítið furðulegir. Fyrir þá sem þekkja ekki google.com leitarvélina og "vogun vinnur vogun tapar" þá fer maður beint á fyrstu niðurstöðu leitarinnar.
myndaalbúm
lag dagsins
chico rockstar
20 góðar kvikmyndir
ýmsir hlekkir
gémsamyndir-t610
danmörk-berlín-2k2-blog
albúmið mitt
myndirnar hennar beggu
skynvillu gallerý
arnar-veldi [kíkiði á ljósmyndirnar]
tommi newmilk
yfirgefið [ljósmyndir]
begga systir
danni hressi og kærastan hans
þóra happy
örn vökudraumur
jónas
betan
aphexgrl
raggi aka mr.motive
halldóra aka. corta
arna aka. villimey
kiddi aka. ghozt
már örlygsson, snillingur
húni hressi
oddur og stuðsíðan hans
bloggið hjá autopr0n gaurnum....
michael moore
sleepbot
live 365
íslenskar útsendingar
bara einhvern vef takk
Yeah, but is it art?
random internet
allconsuming.net
orðabók erfiðu orðana