« mikils misskilnings hefur gætt um | aðal | Slef »

febrúar 08, 2003

þvílíkur ubernördaskapur..... fór í þorrablót

þvílíkur ubernördaskapur.....

fór í þorrablót í gær til familíunnar.. allt í góðu með það.. gaman að borða flatkökur, sviðasultu, hangiket og fleira þjóðlegt... Eins og við mátti búast snerist þetta svo auðvitað upp í húsmæðrastjórnmála umræður sem hægt er að hlæja að.
En aðal nördaskapurinn kom síðan síðar um kvöldið þegar pimpmasterinn skundaði til félagana, með nokkra bjóra og kvöldinu eytt í sull og að stilla til eldveggi og beina.... og horfa á simpsons inn á milli, og þá spyr ég... er ég orðin vonlaus nörd ?

08.02.03 17:18

skyldar greinar: