« ramblings of a madman..... skrif | aðal | úff ekkert að gera í »

ágúst 04, 2002

Já, athyglisvert, nú er verslunnarmannahelgin

Já, athyglisvert, nú er verslunnarmannahelgin og þorri æsku landsins er að smyrja liðamótinmeð áfengum drykkjum, leita sér uppi afsökun til handalögmála, og leitandi að rekkjunautum.

Á meðan er ég í rólegheitum að vinna, ákvað að reyna sleppa einhverri slefandi vitleysu og greip mér þessvegna í vaktir á laugardegi, sunnudegi og mánudegi, en til upplýsingar er ég að vinna í tech supporti hjá ónefndri internet þjónustu í reykjavík. Frekar lítið að gera og þar af leiðandi nota ég tímann til þess að skoða eitthvað funky á vefnum.

Ég varð skýjum ofar er ég sá að colin mcrae 3 væri að koma út en datt snögglega niður þegar að ég sá að hann væri að koma út á xbox og ps2. Sveiattan segi ég og vei codemasters, og vona ég að þeir bæti úr þessu sem fyrst. Þangað til mun ég skemmta mér konunglega í CM2 með force stýrið á pc tölvu minni

04.08.02 13:57

skyldar greinar: