« myndavél | aðal | úffff »

júní 07, 2004

nei eða já

Eins og ég minntist á áður, þá er þessi server greinilega kominn með rétt á helgarfríi, sem mér hafði ekki tilkynnst um, þannig að vefurinn minn var ekki uppi um helgina.... sorp.

Ágætishelgi annars, kíkti út á föstudaginn á "lífið", tékkaði á Naqoyqatsi á laugardaginn, sem er seinasta myndin í quatsi "trilógíunni", sem ég get hiklaust mælt með við þá sem hafa gaman að flottri kvikmyndatöku og öðruvísi myndum.

Svo tékkuðum ég og gulla á sjómannadagsstemningunni á sunnudaginn og kláruðum að horfa á Twin Peaks þættina... allir 29 búnir núna ... "how's annie... eheheh..how's annie"
Með því skemmtilegra sem ég hef horft á síðastliðin ár, ekki spurning að ég ætla að verða mér út um dagbók lauru palmer og ferðast til bandaríkjana, til Twin Peaks, sem er alvöru staður og heitir Aurora í Washinton fylki

07.06.04 11:49

skyldar greinar: