« flens | aðal | ísland framtíðarinnar »

ágúst 16, 2002

stór skál af seríós

Stór skál af seríós.

Hvernig stendur á því að það er miklu auðveldara að taka letikast, heldur en heilsukast?

Ég er búin að vera á seinni vöktum alla vikuna sem þýðir það að ég vakna klukkan 10-11:30, fer aðeins í tölluna, ég morgunmat, reyki og drekk kaffi. Konan náttúrulega farinn í vinnunna klukkan 7 um morguninn [og hatar mig líklega fyrir að fá að sofa lengur].

Djöfulsins geðsjúklingi lentum við í ígær. Þannig er mál með vexti að við tókum leigubíl heim í um seinustu helgi og skömmu síðar uppgvötaðist það að hefðarfrúin hafði týnt veskinu sínu. Reddaðu hún sér númer leigubílstjórans og í gær reyndi hún að hringja í hann en svaraði engin. Á meðan þetta gerðist var ég í vinnunni. Skömmu síðar msn-ar frúin mig og segir að það sé einhver sem hringi og segi ekki neitt... og neiti að leggja á [semsagt heldur línunni].
Ég segi henni að leggja símann á og fljótlega losnar línan, þá læt ég hana stimpla áframsendingu á númerinu yfir á gsm símann minn.

Nokkrar mínútur líða og fljótlega hringir síminn minn, ég svara kynni mig, viðkomandi spyr frekjulega hvort ég búi á þessu heimilisfangi bla bla, ég svara játandi og síðan segist hann krefjast útskýringar á því að hringt hafi verið úr þessu númeri [þá heimasímanum mínum] í númerið hans. Ég vissi náttúrulega ekkert hver viðkomandi var og sagði honum að það hefði kannski geta verið einhver í heimsókn hjá mér [vissi ekkert heldur hvenær einhver hefði hringt í hann]. Þá verður hann ennþá frekari og móðursjúkari og endurtekur í sífellu "ég vill fá útskýringu...ég vill fá útskýringu....ég vill fá útskýringu....ég vill fá úskýringu".
Ég vitaskuld skellti á viðkomandi, gat varla ímyndað mér hversu geðveikur eða á hvaða lyfjum viðkomandi var á. Eftir þessi gaur reynir nokkrum sinnum að hringja í mig fyrst úr sínu númeri og síðan úr númeri með númeraleynd, þá hringi ég á frúnna við komumst að því að geðsjúklingurinn er leigubílstjórinn. Hún hringir í hann, spyr um veskið, og spyr síðan hvort hann hafi verið að hringja, hann neitar því [þetta er sami gaurinn, móðursýkin heyrist langar leiðir "hver ert þú, hvernig þekki ég þig"].

16.08.02 11:38

skyldar greinar: