« missti næstum vitið | aðal | dr.who »

nóvember 13, 2003

breiðhyltingar eru hvítt hyski

fékk alveg meinfyndið msg frá henni gullu áðan á msn, hún var að segja mér frá stráki sem hún var að tala við á msn:

"hann vinnur sem þýðandi á stöð tvö og um daginn þýddi hann white trash sem breiðhyltingar í einhverjum þætti og er að fá símhringingar frá reiðum húsmæðrum í breiðholtinu núna"

ROFLMAO....

síðan fékk ég urlið á bloggið hans

"Það er setið um líf mitt. Af fréttum úr Breiðholti að dæma, og þeim símtölum sem hingað berast, virðist mér hollast að halda mig fjarri því hverfi. Það hef ég reyndar fyrir löngu tamið mér.

Ég vona bara að Strætó bs. bjóði mér ekki upp á fleiri óvissuferðir sem enda í Breiðholtinu á næstunni."


"Líflátshótun

Mér barst nafnlaust sms-skeyti:

Ég dreb thig ef thu seigir einu sini en ad Bridhilltingar séu vite thras!

Jamm..."


"Önnur líflátshótun

Í mig hringdi kona og tjáði mér að ég ætti ekki að vera á ferli í Breiðholti. "Það gæti eitthvað komið fyrir þig".

Jamm... Voðalega er fólk eitthvað viðkvæmt."


Himmi, þú ert snillingur

13.11.03 17:06

skyldar greinar: