« Mikið sukkað í gær, fór | aðal | flens »

ágúst 05, 2002

hugmynd að íslenskri hasarmynd.

Hugmynd að íslenskri hasarmynd.

Treiler:

Myrkur og hjartsláttarhljóð undir

þrumur og eldingar bregður fyrir

myrkur

brjáluðum öldugangi

myrkur

stór togari brýtur öldur

myrkur

mugshot af þrekvösknum 55 ára gömlum manni. undir stendur "Kokkurinn" við heyrum í honum þruma: þið borðið það sem ég elda helvítin ykkar

myrkur

mugshot af 23-25 ára manni. undir stendur "Hásetinn" við heyrum í honum hrópa örvæntingarfullt: "það er eitthvað annað en fiskur í netinu!!!!, náið í kapteinninn"

myrkur

mugshot af 35 ára manni í köflóttri skítugri skirtu. undir stendur "Vélstjórinn" við heyrum í röddu hans angurvært "ég hafði ekki hugsað mér að deyja á þessum
guðsvolaða dalli"

myrkur

mugshot af manni á fertugs aldri í köflóttri skítugri skyrtu. undir stendur "Kapteinninn" Við heyrum í riskingum og honum öskra: "ég líð enga uppreisn á mínu skipi"

Síðan koma myndirnar af þeim öllum og þulur les yfir með djúpri röddu : "fjórir menn..... ein örlög"

Svo koma titlarnir eins og þeir séu fljótandi :

"HÁSKI Á HAFI" [þulur les titilinn líka]

jæja ég er búinn að pitcha þessu, nú er bara að bíða þangað til friðrik eða baltasar kormákur nálgist mig með sand af seðlum og kampavínsglas og samning undir hendinni.....

05.08.02 17:59

skyldar greinar: